Innlent

Kunningi lög­reglunnar grunaður um al­var­lega líkams­á­rás

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í dag. 
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í dag.  Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag mann grunaðan um alvarlega líkamsárás eftir að árásarþoli leitaði á sjúkrahús til aðhlynningar. 

Þetta kemur fram í fréttaskeyti dagsins frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, þar sem segir að lögreglumenn á vaktinni hafi þekkt nokkuð til grunaðs geranda og náð haldi á honum eftir skamman tíma. Sá var vistaður í fangaklefa vegna málsins. 

Þá var tilkynnt um ölvaðan aðila til vandræða í verslun í miðborginni. Eftir samtal við lögreglu gekk maðurinn sína leið og verslunin gerði engar frekari kröfur til hans eða lögreglu.

Tilkynnt var um þjófnað í verslun meðan gerandi var enn á staðnum. Málið var afgreitt með hefðbundnum hætti. Loks voru ökumenn stöðvaðir í akstri grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×