Fótbolti

Orri skoraði í endurkomusigri FCK

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Orri Óskarsson var á skotskónum í dag.
Orri Óskarsson var á skotskónum í dag. Lars Ronbog / FrontZoneSport via Getty Images

Orri Óskarsson skoraði annað mark FCK er liðið vann 3-2 endurkomusigur gegn Íslendingaliði AGF í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Mikael Neville Anderson lagði upp fyrra mark gestanna í AGF þegar liðið komst yfir strax á 13. mínútu leiksins áður en heimamenn í FCK jöfnuðu metin úr vítaspyrnu tæpum stundafjórðungi síðar.

Gestirnir í AGF náðu þó forystunni á ný eftir rétt rúmlega hálftíma leik og staðan var því 2-1, AGF í vil, þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Orri Óskarsson jafnaði þó metin fyrir FCK á 73. mínútu áður en Thomas Delaney tryggði heimamönnum sigurinn fimm mínútum síðar.

Niðurstaðan því 3-2 sigur FCK sem situr í öðru sæti deildarinnar með sex stig eftir tvo leiki, en AGF er aðeins með eitt stig í áttunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×