Bíó og sjónvarp

Robert Downey Jr snýr aftur í Marvel-heima

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Robert Downey Jr hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í Oppenheimer á Óskarsverðlaunahátíðinni í mars.
Robert Downey Jr hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í Oppenheimer á Óskarsverðlaunahátíðinni í mars. EPA

Stórleikarinn Robert Downey Jr mun fara með hlutverk í tveimur væntanlegum bíómyndum Marvel. Um er að ræða tvíleikinn Avengers: Doomsday og Avengers: Secret Wars, og mun Downey fara með hlutverk skúrksins Victor Von Doom, eða Doctor Doom, í þeim báðum. 

Frá þessu var greint á Comic Con hátíðinni sem fór fram í Kaliforníu um helgina. Innkoma Downey var tilkynnt á myndrænan hátt. Hann var klæddur í búning sem og með grímu sem huldi andlit hans og þegar kom að því að kynna hver færi með hlutverk Von Doom svipti Downey hulunni af andliti sínu og hlaut gríðarleg fagnaðarlæti áhorfenda. 

Marvel aðdáendur gleyma seint frammistöðu Downey í hlutverki Tony Stark, eða Iron Man, frá því að fyrsta Iron Man-myndin kom út árið 2008 þar til hann lék hann í síðasta skipti í Avengers: Endgame, sem kom út árið 2019. Nú mun Downey snúa aftur í Marvel heima en í þetta skipti í hlutverki skúrksins Victor Von Doom. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×