Sport

Dag­skráin í dag: Besta-deildin og hafnabolti

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
KR-ingar taka á móti KA í Bestu-deildinni í kvöld.
KR-ingar taka á móti KA í Bestu-deildinni í kvöld. Vísir/HAG

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á fjórar beinar útsendingar á þessum síðasta mánudegi júlímánaðar.

KR og KA eigast við í 16. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu klukkan 18:00, en bein útsending hefst stundarfjórðungi fyrr á Stöð 2 Sport. Að leik loknum verður Stúkan svo á sínum stað þar sem farið verður yfir allt það helsta úr umferðinni.

Á Vodafone Sport verður svo boðið upp á tvo leiki í MLB-deildinni í hafnabolta. Klukkan 19:00 mætast Orioles og Blue Jays áður en Red Sox og Mariners eigast við klukkan 23:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×