Golf

Golf er stundum furðu­leg í­þrótt: Úr verstu upp­lifun kylfings í þá bestu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hayden Buckley á ekki eftir að gleyma þessum tveimur holum í bráð.
Hayden Buckley á ekki eftir að gleyma þessum tveimur holum í bráð. Getty/Dylan Buell

Bandaríski kylfingurinn Hayden Buckley upplifði um helgina tvær afar ólíkar holur og það hvor á eftir annarri.

Buckley var að keppa á 3M Open á bandarísku meistararöðinni en spilað var á golfvellinum í Blaine í Minnesota fylki.

Hann lenti í miklum vandræðum á öðrum hringnum, var með þrjá skramba á fyrstu fimmtán holunum og var þá kominn sex högg yfir parið.

Nei þessi stika er ekkert fyrir

Ofan á það þá tók við afar skrautleg sextánda hola. Buckley rétt slapp við að slá út í vatnið en þegar hann ætlaði að slá aftur inn á brautina þá fór kúlan í stiku og út í vatnið.

Buckley tók upp stikuna í pirringi og kastaði henni í jörðina. Hann endaði á því að klára holuna á sex höggum eða tvöföldum skolla.

„Kylfusveininn spurði mig hvort að þessi stika væri fyrir en ég svaraði honum að það væri ekki nokkur hætta á því,“ sagði Hayden Buckley um höggið sem hæfði stikuna og endaði út í vatninu. NBC segir frá.

„Á þessum tímapunkti þá var ég farinn að hugsa bara um að bóka ferðina heim,“ sagði Buckley en hann gekk síðan upp á sautjándu holuna.

Fékk smá ástæðu til að brosa

Þar hitti Buckley golfboltann frábærlega og fór holu í höggi. Úr verstu upplifun kylfings í þá bestu.

„Ég fékk alla vega smá ástæðu til að brosa á leiðinni heim. Heilt yfir þá var þetta hræðilegur dagur en þessi hola í höggi sá til þess að ég kláraði undir áttatíu höggum,“ sagði Buckley.

Buckley náði skiljanlega ekki niðurskurðinum og kláraði því ekki fleiri hringi á mótinu. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir af honum á þessum tveimur holum. Myndbandið sést ef flett er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×