Formúla 1

Eftir­sóttur Sainz fer til Willi­ams eftir tíma­bilið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sainz yfirgefur Ferrari að keppnistímabilinu loknu.
Sainz yfirgefur Ferrari að keppnistímabilinu loknu. Jakub Porzycki/Getty Images

Koma Lewis Hamilton til Ferrari þýðir að ekki var ljóst hvar Carlos Sainz myndi sinna atvinnu sinni á komandi á tímabili. Það hefur loks fengist svar við því en hann mun keyra fyrir annars slakt lið Williams á komandi tímabili í Formúlu 1.

Hinn 39 ára gamli Sir Lewis Carl Davidson Hamilton ákvað að söðla um og færa sig yfir til ítalska risans Ferrari eftir 17 ára farsælan feril hjá Mercedes. Á hann að hjálpa hinum unga Charles Leclerc að verða enn betri.

Þýddi það að krafta hins 29 ára gamla Carlos Sainz Vázquezde Castro frá Spáni var ekki lengur óskað. Hann var því um tíma atvinnulaus en hefur nú fundið nýjan vinnuveitanda. Sá er ekki alveg jafn frægur og núverandi vinnuveitandi kappans en færa má rök fyrir því að Ferrari sé frægasta lið Formúlu 1 þó svo að það hafi ekki riðið feitum hesti undanfarið.

Williams er eitt slakasta lið F1 undanfarinn áratug eða svo og hefur aðeins skrapað saman fjórum stigum á yfirstandandi tímabili. Ökumenn liðsins í dag eru þeir Alex Albon og Logan Sargeant. Sá síðarnefndi mun hins vegar ekki keyra fyrir liðið á næstu leiktíð þar sem Sainz hefur skrifað undir langtíma samning, ekki kemur þó fram hversu langan.

Á vef Formúlu 1 kemur að ásamt Williams hafi Sauber/Audi og Alpine viljað fá Sainz í sínar raðir en á endanum hafi Williams hreppt hnossið. Nú er bara að bíða og sjá hvort þeim spænska takist að rífa liðið upp af botni Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×