Íslenski boltinn

„Ég varð fyrir von­brigðum með Gylfa“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stúkumenn vildu sjá meira frá Gylfa Þór Sigurðssyni þegar Valsmenn fengu skell um síðustu helgi.
Stúkumenn vildu sjá meira frá Gylfa Þór Sigurðssyni þegar Valsmenn fengu skell um síðustu helgi. Vísir/Diego

Valsmenn fengu skell á móti Fram í Bestu deildinni á sunnudagskvöldið og Valsliðið var til umræðu í Stúkunni í gærkvöldi.

Stúkumenn ræddu þá staðreynd að Valsmenn hafi verið mikið með boltann á móti Fram en lítið náð að skapa sér af færum.

„Þeir lágu á þeim, ég get alveg tekið undir það en að þeir hafi fengið mikið af opnum færum, alls ekki,“ sagði Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Stúkunnar.

„Mér fannst þeir aldrei skapa mikið af færum,“ sagði Albert og fór yfir nokkrar sóknir Valsliðsins í leiknum. Hann nefndi sérstaklega þegar Ólafur Íshólm Ólafsson varði frábærlega frá Gylfa Þór Sigurðssyni á 55. mínútu.

„Ég hafði það alltaf á tilfinningunni að ef Valsliðið myndi skora snemma í seinni hálfleik þá kæmi eitthvað panikk í Framliðið og að þetta myndi snúast við,“ sagði Albert.

Staðan á Valsliðinu

Valsliðið er í miðri Evrópubaráttu og gerðu jafntefli í fyrri leiknum á móti St. Mirren. Kjartan Atli Kjartansson spurði Lárus Orra Sigurðsson, sérfræðing Stúkunnar, um hans skoðun á Valsliðinu á þessum tímapunkti á tímabilinu.

„Þetta tap kom svolítið á óvart því maður hélt kannski að þeir væru aðeins að, ég segi ekki að hrökkva í gang. Ég varð fyrir vonbrigðum með Gylfa í gær,“ sagði Lárus Orri.

„Það var kannski vel gert hjá Fram að halda honum út úr leiknum. Ég sá hann mjög lítið í fyrri hálfleik,“ sagði Lárus.

Ég var að sýna þér af hverju

„Ég var að sýna þér af hverju hann sást ekki í þessum leik. Það var af því að Bjarni gat ekki komið boltanum í þessi svæði og þeir fundu hann ekki,“ skaut Albert inn í. Bjarni Mark Antonsson fékk á sig mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína í mikilvægri stöðu á miðju Vals.

„Gylfi er lykillinn að þessu hjá þeim. Hann er í rauninni besti leikmaðurinn í deildinni. Ef þú ert að tala um möguleika þeirra úti á móti St. Mirren þá eru þeir alveg hverfandi,“ sagði Lárus.

Það má horfa á allt spjall þeirra um Valsliðið hér fyrir neðan.

Klippa: Stúkumenn ræða stöðuna á Valslðinu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×