Innlent

Helgi segir lítinn sóma að fram­göngu ríkis­sak­sóknara

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Helgi hefur ekkert heyrt frá yfirmanni sínum, ríkissaksóknara, eftir að tölvupóstur barst honum um að starfsframlags hans væri ekki óskað tímabundið.
Helgi hefur ekkert heyrt frá yfirmanni sínum, ríkissaksóknara, eftir að tölvupóstur barst honum um að starfsframlags hans væri ekki óskað tímabundið. Vísir/Arnar

Vararíkissaksóknari furðar sig á ósk yfirmanns síns um að dómsmálaráðherra taki mál hans til skoðunar, vegna ummæla sem hann lét falla í fjölmiðlum. Hann viðurkennir að hann hefði getað orðað hlutina öðruvísi, en telur ummælin ekki hafa verið yfir strikið. 

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur lagt til við dómsmálaráðherra að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari verði leystur tímabundið frá störfum vegna kæru á hendur honum fyrir ummæli um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum. Helgi og fjölskylda hans hafa mátt sæta hótunum af hálfu Mohamads Thors Jóhannessonar, áður Kourani, undanfarin ár. Helgi sagði í tilefni af dómi yfir Kourani að verið væri að flytja inn kúltúr í stórum stíl sem væri frábrugðin því sem Íslendingar ættu að venjast. Solaris, hjálparsamtök, hafa kært Helga fyrir ummæli sín.

Hefði getað orðað hlutina öðruvísi

Helgi fékk að vita af ósk Sigríðar til ráðherra í gegnum tölvupóst, sem hann las eftir að samstarfsfólki hans var tilkynnt um hana. Hann segist ekki hafa heyrt frá Sigríði eftir það.

„Þetta kom mér verulega á óvart, og í raun finnst mér ekki mikill sómi að þessari framgöngu. Ég verð að segja það eins og er,“ segir Helgi.

Hann ítrekar að ummælin varði mál sem tengist hans persónu og öryggi fjölskyldu hans.

„Maður er náttúrulega mannlegur og maður tekur ýmislegt á sig og ber sig vel. En ég hef áttað mig á því í framhaldi af öllu þessu hvaða álag það hefur verið að vera í þrjú ár sífellt með hugann við það hvort börnin manns séu örugg heima hjá sér.“

Hann segir að mögulega hefði hann átt að láta það ógert að láta ummælin falla.

„Ég reyndar held að þetta hafi allt verið mjög hófstillt og ekki tilefni til þessara viðbragða ríkissaksóknara yfir höfuð. En maður hefði nú svosem alveg getað orðað hlutina aðeins öðruvísi, það er eins og alltaf, maður er bara mannlegur. En ég vil taka fram að ég tel ekki að ég hafi farið yfir nein strik,“ segir Helgi.


Tengdar fréttir

Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi

Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur lagt til við dómsmálaráðherra að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari verði leystur tímabundið frá störfum vegna kæru á hendur honum fyrir ummæli um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum. Helgi er afar ósáttur við viðbrögð yfirmanns síns og spyr hvort hún hreinlega valdi starfinu.

Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari telur að rétt hafi verið staðið að tilkynningu til Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara og annarra starfsmanna embættisins. Hún segir Helga Magnús ekki hafa bætt ráð sitt eftir áminningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×