Viðskipti innlent

Þórður Snær segir skilið við Heimildina

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Þórður Snær Júlíusson.
Þórður Snær Júlíusson. Vísir/Vilhelm

Þórður Snær Júlíusson hefur látið af störfum sem annar tveggja ritstjóra Heimildarinnar. Fjölmiðilinn Kjarnann, sem sameinaðist Stundinni árið 2023, stofnaði hann fyrir tæpum ellefu árum síðan. 

„Nú er kominn tími til að skipta um takt. Enginn er ómissandi og það kemur alltaf einhver í manns stað. Heimildin er á góðu róli, búin að fara í gegnum tímabil umbreytinga og uppbyggingar, orðinn mikilvægur miðill í íslensku samfélagi og finna ákveðinn stöðugleika sem mun án efa nýtast til enn frekari vaxtar,“ segir Þórður Snær í færslu á Facebook, þar sem hann tilkynnir um starfslokin.

Þórður Snær og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir störfuðu bæði sem ritstjórar Heimildarinnar frá því að sameinaður miðill tók til starfa árið 2023. Áður var hann ritstjóri Kjarnans og þar áður blaðamaður á viðskiptablaði Morgunblaðsins. 

Hann segir starf ritstjóra gefa mikið, en það  taki mikið líka. 

„Fyrir nokkru tilkynnti ég stjórn Sameinaða útgáfufélagsins að ég hefði hug á að láta af störfum sem ritstjóri Heimildarinnar og sú niðurstaða formgerðist í dag. Nú tekur við yfirlega um hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór.“

Það örli á blendnum tilfinningum. 

„Ég er hins vegar sannfærður um að þetta sé rétt skref á þessum tímapunkti og finn fyrst og síðast fyrir ofsalegu þakklæti og stolti yfir að hafa fengið tækifæri til að fara í þessa brjáluðu vegferð sem stofnun á litlum og gagnrýnum aðhaldsfjölmiðli, í afar skökku samkeppnisumhverfi innan örsamfélags, er.“

Að lokum þakkar Þórður Snær samstarfsfólki í gegnum árin. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×