Innlent

Einn fluttur á sjúkra­hús eftir bílveltu í Sjá­landi

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Slökkviliðsmenn sátu ekki aðgerðalausir í kvöld. 
Slökkviliðsmenn sátu ekki aðgerðalausir í kvöld.  Vísir/Vilhelm

Bílvelta varð við Löngulínu í Sjálandshverfi í Garðabæ í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús til skoðunar en áverkar viðkomandi eru ekki taldir alvarlegir. 

Jónas Árnason hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Önnur bílvelta varð á Reykjavíkurvegi, tæpum tveimur kílómetrum í burtu, fyrr í kvöld og segir Jónas fyrra óhappið mjög svipað því seinna. Raunar hafi sami mannskapur verið kallaður út í báðum tilfellum. 

Bíllinn hafnaði á hliðinni.Vísir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×