Innlent

Auknar líkur á skriðu­föllum um helgina

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Auknar líkur eru á skriðum á Ströndum um helgina.
Auknar líkur eru á skriðum á Ströndum um helgina. Vísir/Vilhelm

Auknar líkur eru á skriðuföllum á Suðurlandi og Ströndum yfir verslunarmannahelgina samkvæmt ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands.

Uppsöfnuð úrkoma er spáð mikil á Suður- og Suðausturlandi, um 399 mm á 66 klukkustundum á Mýrdalsjökli, yfir 400 á Öræfum og einnig mikið austan Vatnajökuls. Á vef ofanflóðsvaktarinnar segir að þetta úrkomumagn teljist ekki talsvert en að sterkir vindar eigi að fylgja þessu veðri og því geti úrkomumagn verið mikið í hlíðum áveðurs.

Á Ströndum er uppsöfnuð úrkoma 129 mm fram á miðnætti en samfara því eykst hætta á skriðum og grjóthruni í bröttum hlíðum. Aukin skriðuhætta getur varað eftir að mesta rigning er búin.

„Því er ráðlagt að sýna aðgát næstu daga á þekktum skriðusvæðum,“ segir á vef ofanflóðsvaktarinnar.

Fregnir hafi þegar borist af skriðu sem fór yfir veg 643 í Reykjarfirði og einnig hefur vegur farið í sundur í Veiðileysufirði.

Veðurstofan hvetur fólk sem verður skriðu var að senda ábendingu í síma eða með skráningarformi á vef Veðurstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×