Handbolti

Læri­sveinar Al­freðs unnu lokaleikinn og enduðu efstir í riðlinum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Alfreð Gíslason er þjálfari þýska landsliðsins.
Alfreð Gíslason er þjálfari þýska landsliðsins. Marijan Murat/picture alliance via Getty Images

Þýska handboltalandsliðið tryggði sér efsta sætið í A-riðli með 36-29 sigri gegn Slóveníu í síðasta leik riðlakeppninnar á Ólympíuleikunum.

Sigurinn var aldrei í hættu fyrir lærisveina Alfreðs Gíslasonar sem brunuðu fram úr strax í fyrri hálfleik og leiddu með níu mörkum þegar hann var flautaður af.

Slóvenum tókst aldrei að nálgast þá þýsku af neinu viti í seinni hálfleik og sjö marka sigur niðurstaðan.

Þýskaland tryggði sér þar með efsta sætið í A-riðli. Slóvenar enduðu í 2. sæti og eru einnig öruggir áfram í 8-liða úrslit.

Hver mótherji þeirra verður á eftir að koma í ljós en Frakkland, Ungverjaland og Noregur stefna öll á að fara upp úr B-riðlinum, lokaleikir þess riðils fara fram síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×