Viðskipti innlent

Starbucks opnar á Ís­landi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Starbucks er stærsta kaffihúsakeðja heims.
Starbucks er stærsta kaffihúsakeðja heims. Getty

Kaffihúsakeðjan alþjóðlega Starbucks hyggst opna kaffihús á Íslandi innan tíðar. Malasíska félagið Berjaya Food International hefur tryggt sér rekstrarrétt til þess.

Berjaya Food International er alþjóðlegi armur Berjaya Food Berhad sem rekur meðal annars fjögur hundruð Starbucks-kaffihús í Malasíu og Brúnei. Mbl.is greinir frá þessu.

Fyrirtækið segist ætla sér stóra hluti á Norðurlöndunum, en það hefur einnig tryggt sér réttinn til að reka Starbucks í Danmörku og Finnlandi.

Undir samstæðunni Berjaya er fjöldi félaga, þeirra á meðal Berjaya Land Berhad sem keypti Icelandair Hotels á árunum 2019 og 2021.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×