Lífið

Lil Curly og Brynja ekki lengur bara vinir

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ástin blómstrar hjá Brynju og Arnari Gauta, Lil Curly, í Los Angeles
Ástin blómstrar hjá Brynju og Arnari Gauta, Lil Curly, í Los Angeles Instagram

Áhrifavaldarnir Brynja Bjarnadóttir Anderiman og Arnar Gauti, betur þekktur sem Lil Curly, eru byrjuð saman. Þetta staðfestir Arnar við blaðamann en parið byrjaði sem mjög góðir vinir og hafa sést saman víða, bæði hér heima og í ferðalögum erlendis.

Hjúin eru nú stödd í Los Angeles og virðist ástin blómstra. Þau leigðu sér meðal annars blæjubíl og keyrðu eftir strandlengjunni. 

Parið naut lífsins í Los Angeles.Instagram @brynjabjarnaa

Bæði eru þau með stóran hóp fylgjenda á Instagram og eru dugleg að deila myndum af hvort öðru. 

Fyrir skemmstu hélt Arnar því fram að þau væru einfaldlega bara bestu vinir. 

Mikið vatn hefur því runnið til sjávar hjá Curly og Brynju á síðustu vikum en Brynja er komin með sérstakt „highlight“ á Instagram síðu sinni undir heitinu Luv eða ást og þar má finna myndir af henni og hennar heittelskaða. 

Ástin blómstrar.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.