Atvinnulíf

Að yfir­stíga eitt­hvað rosa­lega vand­ræða­legt at­vik

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það upplifa allir eitthvað vandræðalegt í vinnunni stundum. Eitthvað óvart gerist sem við vitum ekki af, lykkjufall í sokkabuxum eða svitablettir í skyrtu, kúkalykt af klósettinu eða neyðaraleg mismæli. Já það getur allt gerst. Og enginn lendir aldrei í neinu.
Það upplifa allir eitthvað vandræðalegt í vinnunni stundum. Eitthvað óvart gerist sem við vitum ekki af, lykkjufall í sokkabuxum eða svitablettir í skyrtu, kúkalykt af klósettinu eða neyðaraleg mismæli. Já það getur allt gerst. Og enginn lendir aldrei í neinu. Vísir/Getty

Það lenda allir í einhverju vandræðalegu í vinnunni. Mómentum sem fær fólk til að roðna eða í það minnsta fá smá kipp í magann.

Að vera til dæmis nýbúinn að kúka á klósettinu þegar næsti maður fer inn og lyktin er augljóslega þín lykt er dæmi um algengt móment. Sem flestir þekkja en fæstir ræða um.

Enda snúast vandræðanlegu mómentið okkar í vinnunni ekkert um það að tala um þau. Heldur það að takast á við þau þannig að þau séu ekki að taka frá okkur óþarfa orku né tíma.

Því allir lenda í einhverju vandræðalegu.

ALLIR!

Ef þér finnst þú hins vegar vera í vandræðum við að losna við minningu um eitthvað í huganum, móment eða atvik sem kom upp og þér fannst vandræðanlegt, eru hér nokkur ráð sem geta hjálpað.

1. Hið sígilda: Teldu upp að tíu

Gamla góða ráðið um að draga andann djúpt og telja upp að tíu virkar alltaf vel. Í þetta sinn ætlum við samt að gera það með því hugarfari að þegar við öndum frá okkur, séum við að anda því frá okkur að vera að berja okkur niður fyrir eitthvað atvik sem ekki breytist héðan af. Enda ekkert gagn í því. Það sem gerðist gerðist.

2. Annað eins hefur nú gerst

Þá er að minna okkur á að það sem gerðist hjá okkur og við erum að upplifa sem svona vandræðalegt, er örugglega ekki það versta eða hallærislegasta sem fólk hefur lent í. Satt best að segja hefur nú annað eins gerst og þaðan af verra….

Verum góð við okkur sjálf og sýnum okkur samkennd og skilning. Oft hjálpar það líka að brosa bara svolítið yfir því sem gerðist. Þó ekki nema innra með okkur.

3. Hvað viltu taka með þér?

Við viljum samt ekki grafa atvikið það djúpt í minningunni að við séum ekki að læra eitthvað af því sem gerðist. Er eitthvað sem þetta atvik kenndi þér? Hvað? Og hvernig muntu passa að lenda ekki í sambærilegu aftur?

4. Spaugilegt síðar

Þá er það eitt sem einfaldlega er staðreynd hjá okkur flestum. Og það er að seinna meir getum við oftast hlegið dátt að því sem gerðist, sérstaklega ef það var eitthvað vandræðalegt. 

Auðvitað eigum við ekkert að reyna að þvinga fram hláturinn eða segja frá á meðan við erum enn að glíma við að finnast eitthvað erfitt tilfinningalega. 

Að rifja samt upp eitthvað sem við áður höfum lent í en erum núna gjörn á að segja frá opinskátt og frjálslega, skellihlæjandi sjálf, getur samt hjálpað okkur að sjá að auðvitað var þetta atvik ekki verra en það að okkur mun finnast það spaugilegt síðar.


Tengdar fréttir

Andfúli vinnufélaginn og góð ráð

Við erum andfúl á morgnana þegar að við vöknum en sem betur fer er það frá um leið og við höfum burstað tennurnar. Og þó.

Góð ráð fyrir lata starfsmenn

Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar.

Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð

Í vikunni birtist frétt um að Hollywodd-stjarnan Dwayne Johnson, betur þekktur sem The Rock og af blaðamanni Vísis kallaður Steini, hafi verið sakaður um króníska óstundvísi við tökur á myndinni Red One.

Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð

Nú hafa Danir tekið af skarið og gefið út leiðbeiningar um símanotkun fullorðins fólks. Sem talin er geta verið heilsuspillandi ef notkunin nemur meira en þrjár klukkustundir á dag.

Góð ráð til að sporna við „ofhugsunum“

Að ofhugsa eða verja óendanlegum tíma í að greina hluti og kryfja þá er vandamál sem margir kannast við. Heilu dagarnir geta farið í þessar hugsanir, sem þó leiða oft ekki til neinna lausna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×