Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 19. ágúst 2024 16:00 Nýdönsk hlaut tveggja milljón krónu styrk frá Tónlistarsjóði. Nýdönsk Fimmtudaginn 15. ágúst hélt Tónlistarmiðstöð athöfn til að heiðra styrkhafa seinni úthlutunar Tónlistarsjóðs 2024 en þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr öllum deildum nýs Tónlistarsjóðs. Margt var um manninn og ýmis þekkt andlit létu sjá sig.
97 milljónir veittar Nýr tónlistarsjóður veitti í fyrsta sinn styrki úr öllum deildum sjóðsins. Alls voru 97 milljónir veittar til 111 verkefna. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ávarpaði styrkhafa og María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, kynnti nýjungar sjóðsins og umbætur á umsóknarferlinu. Tónlistarmaðurinn Mikael Máni spilaði lagið Expiration Date fyrir viðstadda. „Það er mikið fagnaðarefni að sjá hversu mörg spennandi verkefni hlutu styrk og ekki síður er það gleðiefni að heyra frá úthlutunarnefndum hve mörg og efnileg verkefni sóttu um. Sú staðreynd að það sé erfitt að velja hver hljóti styrk er mikilvæg vísbending um gróskuna í íslensku tónlistarlífi. Tónlistarmiðstöð er frábær umgjörð sem býður upp á fjölbreytta þjónustu og tækifæri sem ég hvet sem flesta til að kynna sér. Þar er til dæmis boðið upp á ráðgjöf við styrkumsóknir og þangað má sækja innblástur og fagþekkingu frá einvala sérfræðingum,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Menningar- og viðskiptaráðherra í ræðu sinni. Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra flutti ávarp.Juliette Rowland Nýdönsk og ADHD fá tvær milljónir Alls bárust 364 styrkumsóknir en til úthlutunar voru sem áður segir 97 milljónir króna. Veittir voru styrkir til 111 verkefna, þar af fjórir langtímasamningar. „Kammerhópurinn Nordic Affect fær 2.5 m.kr.til tveggja ára fyrir tónleikadagskrá hópsins árin 2025-2026. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fær 6 m.kr. til þriggja ára, 2024-2026, vegna verkefnisins „Sjálfbært showcase - framtíðarstefna Iceland Airwaves“. Tónskáldafélag Íslands hlýtur 4 m.kr. til tveggja ára, 2025-2026 vegna Myrkra músíkdaga. Hlutmengi hlýtur 3 m.kr. til tveggja ára, 2024-2025, vegna tónleikadagskrár í Mengi. Hæstu tónlistarstyrki úr deild frumsköpunar og útgáfu fá Daníel Bjarnason, 2,9 milljónir króna og Nýdönsk, 2 milljónir króna. Hæstu flytjendastyrki úr deild lifandi flutnings fá Kammersveitin Elja með 1,5 m.kr. og Mugison, Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, Helgi Rafn Ingvarsson og Hljómsveit Akureyrar hljóta 1 m.kr. hvert. Hæstu viðskiptastyrki úr deild þróunar og innviða hljóta VibEvent, OPIA Community, Þjóðlagahátíðin á Siglufirði, MetamorPhonics, WindWorks í Norðri, Reykjavík Early Music Festival, Múlinn Jazzklúbbur, LungA, Ascension MMXXIV og BIG BANG upp á 1 m.kr. hvert. Hæstu markaðsstyrki úr útflutningsdeild hlýtur ADHD upp á 2 m.kr. og viibra upp á 1.5 m.kr,“ segir í fréttatilkynningu frá Tónlistarmiðstöð. Frekari upplýsingar um veitta styrki og skiptingu á milli deilda Tónlistarsjóðs má nálgast hér. Hér má sjá myndir frá viðburðinum: Það var margt um manninn.Aðsend Högni Egilsson brosti breitt.Juliette Rowland Tónlistarmennirnir Mikael Máni og Hrafnkell Kaktus á spjalli.Juliette Rowland Kristín Valsdóttir ásamt Birni Thoroddsen.Juliette Rowland Margrét Ósk Gunnarsdóttir, umboðsmaður Supersport!, var í salnum en þau fengu 1.000.000 kr. í markaðsstyrk fyrir útflutningi á næstu plötu sveitarinnar.Juliette Rowland Sindri Ástmarsson og Ísleifur Þórhallsson frá Iceland Airwaves standa glaðbeittir við hlið Einars Bárðarsonar, stjórnarformanns Tónlistarmiðstöðvar.Juliette Rowland Einar Bárðarson var klæddur í sitt fínasta púss.Juliette Rowland Tónlistarmaðurinn Mikael Máni tók lagið.Juliette Rowland Sigtryggur Baldursson útflutningssérfræðingur hjá Tónlistarmiðstöð var í góðum gír.Juliette Rowland Tónskáldinu Högna Egilssyni var tekið fagnandi.Juliette Rowland Veitta langtímastyrki fengu Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu fyrir Iceland Airwaves, Ólöf Arnalds fyrir tónleikastaðinn Mengi, Gunnhildur Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Tónskáldafélagsins fyrir Myrka Músíkdaga, og Guðrún Óskarsdóttir meðlimur Nordic Affect sem eru hér ásamt Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra.Juliette Rowland Sindri Magnússon kynnir styrkhafa úr deild útflutnings.Juliette Rowland Mikið stuð!Aðsend Hafdís Bjarnadóttir kynnti niðurstöður úthlutunarnefndar úr deild frumsköpunar og útgáfu. Hún minntist jafnframt tónlistarmannsins Halldórs Bragasonar í ávarpi sínu.Juliette Rowland Frá vinstri: Hildur Kristín Stefánsdóttir, Gunnhildur Einarsdóttir, Ísleifur Þórhallsson, Sindri Magnússon, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Kristín Valsdóttir, Ólöf Arnalds, María Rut Reynisdóttir og Anna Rut Bjarnadóttir.Juliette Rowland Hildur Kristín Stefánsdóttir kynnti styrki.Juliette Rowland
Samkvæmislífið Tónlist Menning Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar Sjá meira