Mikinn hluta þess má væntanlega rekja til 175 milljarða sölu hans á fyrirtækinu til danska heilbrigðisrisans Coloplast. Rétt er að taka fram að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur og þurfa ekki að endurspegla föst laun hans og annarra sem birtast í blaðinu.
Í öðru sæti á listanum er Davíð Helgason, stofnandi Unity, sem var með 33 milljónir króna á mánuði. Á eftir honum koma tveir Magnúsar, Magnús Eðvald Björnsson. forstjóri Men&Mice með 21 milljón króna á mánuði og Magnús Steinarr Norðdahl, forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Annata, með 19 milljónir króna á mánuði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2022 sem var greiddur árið 2023.
Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.
Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Aðrir með yfir tíu milljónir króna á mánuði á forstjóralistanum eru Árni Oddur Þórðarson, fyrrverandi forstjóri Marels, með 17,5 milljónir, Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skel og bróðir Þórdísar Kolbrúnar utanríkisráðherra, með 13,7 milljónir, Haraldur Líndal Pétursson, framkvæmdastjóri Johan Rönning, með 13,2 milljónir, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar með 11,3 milljónir, Grímur Sæmundsson, forstjóri Bláa lónsins, með 11,1 milljón og Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas Capital, með 10,2 milljónir. Hún er jafnframt eina konan á forstjóralistanum með yfir tíu milljónir á mánuði.
Aðrir þekktir toppar eru listanum eru meðal annars:
- Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skeljungs. 9,2 milljónir
- Brett Alberg Vigelskas, framkvæmdastjóri Costco á Íslandi. 9,2 milljónir
- Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi. 9 milljónir

- Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima og fyrrverandi framkvæmdastjóri SA. 9 milljónir
- Orri Hauksson, fyrrverandi forstjóri Símans. 6,5 milljónir
- Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samhera. 6,4 milljónir
- Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku. 6,3 milljónir

- Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga. 6,1 milljón
- Finnur Oddsson, forstjóri Haga. 5,8 milljónir
- Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festis. 5,7 milljónir
- Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. 5,5 milljónir
- Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Heimkaupa. 5,5 milljónir

- Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. 5,4 miljónir
- Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. 5 milljónir
- Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar. 4,9 milljónir
- Björn Leifsson, eigandi World Class. 4,9 milljónir
- Steinþór Skúlason, forstjóri SS. 4,3 milljónir.

- Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. 4,2 milljónir
- Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins. 4,1 milljón
- Margrét Björk Tryggvadóttir, forstjóri Nova. 4 milljónir
- Birgir Jónsson, fyrrverandi forstjóri Play. 4 milljónir
- Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar. 3,3 milljónir
- Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66 Norður. 2,9 milljónir

- Ágústa Þóra Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar og eiginkona umhverfisráðherra. 2,8 milljónir
- Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix. 2,7 milljónir
- Magnús Hafliðason, forstjóri Dominos. 2,6 milljónir
- Sölvi Blöndal, forstjóri Alda Music. 2,2 milljónir

- Kleópatra K. Stefánsdóttir, forstjóri Gunnars majónes. 2,2 milljónir
- Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi Blush. 2,2 milljónir
- Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri Fjártækniklasans. 1,9 milljónir
- Leifur Björn Dagfinnsson, framkvæmdastjóri True North. 1,7 milljónir

- Svava Þorgerður Johansen, forstjóri NTC. 1,6 milljónir
- Ari Edwald, fyrrverandi forstjóri Íseyjar útflutnings. 1,6 milljónir
- Finnur Árnason, fyrrverandi forstjóri Haga. 1,5 milljónir

- Egill Örn Jóhannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Forlagsins. 1,4 milljónir
- Sigmar Vilhjálmsson, eigandi Minigarðsins og framkvæmdastjóri Munnbitans, 1,2 milljónir
- Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi Fiskikóngsins, 696 þúsund
