Lágvöruverðsverslunin Prís opnaði á laugardaginn, og boðaði harða samkeppni við lágvöruverðsverslanir á borð við Krónuna og Bónus. Á þriðjudag greindi verðlagseftirlit ASÍ svo frá því að verð á matvöru hefði lækkað í mánuðinum, í fyrsta sinn frá undirritun kjarasamninga í mars, og að sú þróun hafi verið vel á veg komin fyrir opnun Prís, sem væri þó með lægra vöruverð en hinar tvær verslanirnar í 96 prósent tilfella.
Formaður Neytendasamtakanna tekur aukinni samkeppni fagnandi.
„Og það er alveg ljóst að miðað við viðtökurnar hefur þeim tekist að lækka vöruverð ansi mikið, og fólk virðist flykkjast í búðina til að fá matvöru á lægra vöruverði,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Samtökin fái upplýsingar frá verðlagseftirliti ASÍ, sem sjái aðrar verslanir fylgja eftir komu Prís með því að lækka verð hjá sér.
„Sem er gott, og öllum neytendum til hagsbóta. Því hinar verslanirnar hafa nú lofað því að vera með sama verð um allt land. Innkoma Prís hefur ekki bara áhrif á höfuðborgarsvæðið, heldur ætti að hafa áhrif á verðlækkun um allt land.“
Gott svigrúm virðist hafa verið til verðlækkana.
„En hvatinn kom ekki fyrr en Prís kom á markað, og það er eitthvað sem við hljótum að fagna.“
Útlit sé fyrir að á samkeppninni slakni með tímanum.
„Það lítur þannig út að verslanirnar sem hafa verið fyrir á markaði, hafi haft með sér nokkurs konar þögult samkomulag um að hafa þetta eins og þetta er. Þess vegna er svo gott að það komi einhver nýr inn á markaðinn af miklu afli, til þess að lækka vöruverðið,“ segir Breki.