Innlent

Vaktin: Af neyðarstigi á hættu­stig en ó­breyttur við­búnaður

Hólmfríður Gísladóttir, Gunnar Reynir Valþórsson, Lovísa Arnardóttir og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa
Mynd úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar sem tekin var í flugi rétt upp úr hádegi í dag og horfir yfir nyrsta hluta gossprungunnar.
Mynd úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar sem tekin var í flugi rétt upp úr hádegi í dag og horfir yfir nyrsta hluta gossprungunnar. Mynd/Almannavarnir/Björn Oddsson

Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 í gær í kjölfar öflugrar skjálftahrinu.  Gossprungan er um sjö kílómetra löng en ekki virk alla leiðina. Gossprungan nær norðar en í síðustu gosum. Hraun rennur ekki í átt að Grindavík og eru allir helstu innviðir taldir öruggir eins og er. Rýming er enn í gildi á svæðinu.

Virknin var mikil í fyrstu en verulega dró úr henni eftir klukkan fjögur í nótt. Gasmengun frá eldgosinu mun berast til suðurs og suðausturs í dag og á morgun.

Lögreglan ræður fólki frá því að ganga að svæðinu en mikill áhugi hefur verið á gosinu. Búið er að lækka hámarkshraða á milli Grindavíkurvegar og Vogavegar í 50 kílómetra á klukkustund. Lögregla ræður fólki frá því að stöðva í vegkanti til að horfa á eldgosið.

Öll nýjustu tíðindi má sjá í vaktinni hér að neðan. Endurhlaðið síðunni ef vaktin birtist ekki strax. 




Fleiri fréttir

Sjá meira
×