Vilja verða hverfisbarinn við Snorrabraut Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 23. ágúst 2024 21:00 Ragnheiður Sara segir viðtökurnar hafa verið mjög góðar. Á dagskrá er að halda ýmsa tónleikaviðburði á Snorrabar. Vísir Nýr bar hefur opnað við Snorrabraut í Reykjavík og ber hið viðeigandi heiti Snorrabar. Rekstrarstjóri vill bjóða upp á notalegan og stílhreinan hverfisbar með reglulegum tónlistarviðburðum.
Barinn er í sama húsi og Nordic Hostel og eru bæði bar og hostel í eigu Helga Ólafssonar. Dóttir hans, Ragnheiður Sara Sörensen, er rekstrarstjóri Snorrabars og segist hafa fundið fyrir mikilli eftirspurn að opnaður yrði hverfisbar. „Við stefnum á að fá innblástur frá Loft Hostel og Kexinu. Við ætlum að vera með DJ-a og aðra viðburði en ekki stórtónleika heldur frekar rólegri tónleika,“ segir Ragnheiður í samtali við Vísi. Staðurinn er mjög hlýlegur, enda fjöldinn allur af plöntum til að blása lífi í staðinn.Snorrabar „Við viljum bjóða nágranna okkar velkomna og gera þetta að heimabar þeirra sem eru hérna í hverfinu.“ Á ekki að vera skemmtistaður Staðurinn opnaði fyrir um mánuði síðan og segir Ragnheiður að staðurinn hafi verið vel sóttur. „Algörlega og allir þeir sem ég hef talað við sem búa hérna í hverfnu eru mjög spenntir að fá hverfisbarinn. Af því að þetta er líka bara bar, þetta á ekki að vera skemmtistaður. Það verða ekki læti og það á ekki að vera ónæði fyrir nágranna eða fólkið sem er að gista,“ segir Ragnheiður. Hún segist mjög ánægð með staðsetninguna og barinn spili vinni vel með veitingastaðnum Just Winging It, sem er á neðri hæð hússins. „Við ætlum að keyra út á fegurð og hafa hann alltaf snyrtilegan og fínan.“ Það er bæði hostel og veitingastaður í húsinu.Snorrabar Segir reksturinn byrja ótrúlega vel Hún segir barinn hugarfóstur pabba síns, Helga. „Hann sá bara um þetta allt. Hann er búinn að ferðast um allan heim og fá hugmyndir. Síðan er Helgi svo mikill fagurkeri og þetta er allt hans.“ Mikil umræða hefur verið meðal veitingamanna undanfarin misseri um hve erfitt getur reynst að ná árangri í geiranum. Margir hafa kvartað undan háum vöru- og áfengiskostnaði og hás launaliðar. Ragnheiður segist ekki hafa áhyggjur. „Ég er mjög bjartsýn og þetta er að byrja svo ótúrlega vel. Ég vona bara það haldi áfram. Við erum búin að fá frábærar viðtökur frá ótrúlegasta fólki,“ segir Ragnheiður.
Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið Vilja verða hverfisbarinn við Snorrabraut Viðskipti innlent Segir DNA-tal ráðherra fráleita skýringu á verðbólgu Viðskipti innlent Mata-systkinin gera yfirtökutilboð í fasteignafélagið Eik Viðskipti innlent Mótmæla samráðsummælum Breka og segja þau „haldlaus“ Neytendur Prís hrærir í pottinum: „Ekkert of langt gengið að kalla þetta verðstríð“ Neytendur Verslanir hafi haft með sér „þögult samkomulag“ um verð Neytendur Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Viðskipti erlent Gúrkan hækkað um þúsund krónur Viðskipti innlent ReebokFitness skiptir um nafn Viðskipti innlent Fordæmir hagstjórnina og hvetur ríkisstjórnina til að bregðast við Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja verða hverfisbarinn við Snorrabraut Segir DNA-tal ráðherra fráleita skýringu á verðbólgu Mata-systkinin gera yfirtökutilboð í fasteignafélagið Eik Fordæmir hagstjórnina og hvetur ríkisstjórnina til að bregðast við Þróun á húsnæðismarkaði ólíkleg til að breytast Laus störf þrjú prósent á öðrum ársfjórðungi Þrír virkir leitendur fyrir hvern leigusamning Gúrkusalatið ekki eina ástæða gúrkuskortsins Hefur trú á að verðbólgumarkmið náist Fá 34 milljóna sekt vegna vanskila á losunarheimildum Alvarleg vanskil aukist töluvert Samið við þrjá um umsjón útboðs á hlutum ríkisins í Íslandsbanka Gúrkan hækkað um þúsund krónur Íbúðaverð hækkað um ellefu prósent ReebokFitness skiptir um nafn Sesselía yfirgefur Vodafone Hörð peningastefna ekki komið heimilum í vandræði Fljúga til Álaborgar næsta sumar Hefði ekki í „blautustu, villtustu draumum“ órað fyrir óbreyttum stýrivöxtum Bein útsending: Peningastefnunefnd rökstyður stýrivaxtaákvörðun Segir jafn galið að birta lista yfir tekjur bótaþega Óbreyttir stýrivextir í enn eitt skiptið Nær markmiðinu aftur og var með 108,6 milljónir á mánuði Topparnir hjá hinu opinbera Forstjórarnir sem möluðu gull á síðasta ári Mæld verðbólga meiri ef Hagstofan hefði ekki skipt um kúrs Sér ekki vaxtalækkun í kortunum fyrr en í nóvember Engin hópuppsögn í júlí Ritúalið verður að Skjóli Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Sjá meira