Fótbolti

Bjarki Steinn ekki með lands­liðinu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Bjarki Steinn Bjarkason verður ekki í landsliðshópnum sem kynntur verður á miðvikudag.
Bjarki Steinn Bjarkason verður ekki í landsliðshópnum sem kynntur verður á miðvikudag. NESImages/DeFodi Images via Getty Images)

Bjarki Steinn Bjarkason, leikmaður Venezia á Ítalíu, verður ekki með íslenska karlalandsliðinu í komandi leikjum í Þjóðadeildinni. Bjarki er á leið í aðgerð vegna kviðslita.

Bjarki Steinn hefur ekki leikið með Venezia í upphafi leiktíðar á Ítalíu vegna kviðslita sem hafa plagað hann. Fótbolti.net greinir frá því að hann sé á leið í aðgerð vegna þessa í næstu viku.

Hann geti því ekki tekið þátt í landsleikkjunum við Svartfjallaland og Tyrkland í Þjóðadeildinni í byrjun september. Hann vonist til þess að geta tekið þátt í landsleikjum Íslands í október.

Bjarki Steinn var öflugur með Venezia á síðustu leiktíð þegar félagið vann sér sæti í Seríu A. Hann var valinn í landsliðið í júní og átti stórleik er Ísland vann 1-0 sigur á Englandi á Wembley.

Åge Hareide tilkynnir landsliðshóp Íslands fyrir leikina við Svartfjalland og Tyrkland á miðvikudaginn næsta.

Landsleikirnir við Svartfjallaland og Tyrkland verða sýndir á Stöð 2 Sport, sem og allir leikir Íslands í Þjóðadeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×