Innlent

Leit hætt og rætt við föður drengs sem varð fyrir stunguárás

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld.
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld. Vilhelm

Björgunaraðgerðum við Breiðamerkurjökul var hætt í dag eftir að í ljós kom að enginn var undir ís sem féll á ferðamenn. Lögregla segir mikilvægt að skráning í varasamar ferðir sé skýr.

Við sjáum myndir frá umfangsmiklum aðgerðum á jöklinum og ræðum við viðbragðsaðila í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Faðir palestínskt drengs sem varð fyrir alvarlegri stunguárás á menningarnótt ásamt tveimur íslenskum stúlkum segist hafa talið að hann væri að bjarga lífi barnanna sinna með því að flytja til Íslands. Rætt verður við föðurinn í kvöldfréttum.

Svokölluð breiðfylking félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu á áfengi. Við heyrum í fulltrúa forvarnarsamtaka í beinni en fylkingin óttast áhrif fyrirhugaðrar áfengissölu í Hagkaup.

Þá heyrum við í unglingum sem mega nú sofa lengur eftir að upphafi skóladagsins var frestað og hittum vinkonur sem rökuðu af sér hárið vegna krabbameinsmeðferðar annarrar þeirra.

Í sportpakkanum hittum við sundkappann Anton Svein McKee sem hvetur ungt íþróttafólk til dáða með því að gefa því ólympíuvörur sem hann fékk í París í sumar og í Íslandi í dag heyrum við sögu Kolbeins Tuma og fjölskyldu sem hélt í ævintýraferð til Suður-Ameríku í vor.

Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×