Sport

Dag­skráin í dag: Meistara­deild Evrópu, Bestu mörkin og hafna­bolti

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr fyrri leik Young Boys og Galatasaray.
Úr fyrri leik Young Boys og Galatasaray. EPA-EFE/PETER SCHNEIDER

Það er að venju nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 20.00 eru Bestu mörkin á dagskrá. Þar verður farið yfir síðustu umferð í Bestu deild kvenna í knattspyrnu.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 18.50 hefst útsending frá Tyrklandi þar sem Galatasaray tekur á móti Young Boys í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Staðan er 3-2 Young Boys í vil.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 18.50 hefst útsending frá Austurríki þar sem Salzburg tekur á móti Dynamo Kíev í forkeppni Meistaradeildarinnar. Staðan er 2-0 Salzburg í vil.

Vodafone Sport

Klukkan 18.50 hefst útsending frá Tékklandi þar sem Sparta Prag tekur á móti Malmö í forkeppni Meistaradeildarinnar. Staðan er 2-0 Prag í vil.

Klukkan 22.30 er viðureign Philadelphia Phillies og Houston Astros í MLB-deildinni í hafnabolta á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×