Íslenski boltinn

Var kominn niður á rassinn í teignum en skoraði samt: Sjáðu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Örvar Eggertsson kom Stjörnunni yfir á móti sínum gömlu félögum úr HK í Garðabænum í gærkvöldi. Örvar kom til Stjörnunnar frá HK fyrir tímabilið.
Örvar Eggertsson kom Stjörnunni yfir á móti sínum gömlu félögum úr HK í Garðabænum í gærkvöldi. Örvar kom til Stjörnunnar frá HK fyrir tímabilið. Vísir/Diego

Stjarnan komst upp í efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta eftir 2-0 sigur á HK í Garðabænum í gærkvöldi. Nú má sjá mörkin úr leiknum inn á Vísi.

Þetta var fyrsti sigur Stjörnumanna í ágústmánuði og sá fyrsti síðan þeir sóttu þrjú stig upp á Akranes í lok júlí. Liðið hafði leikið þrjá leiki í röð án sigurs.

Örvar Eggertsson kom Stjörnunni í 1-0 á 21. mínútu eftir undirbúning þeirra Óla Vals Ómarssonar og Róberts Frosta Þorkelssonar. Örvar skoraði af miklu harðfylgi en hann var að skora á móti sínum gömlu félögum. Hann var kominn niður á rassinn í teignum en tókst samt að skora. Sjötta mark Örvars í Bestu deildinni í sumar.

Óli Valur skoraði sjálfur annað markið á 61. mínútu og þá eftir laglega stoðsendingu frá Róberti Frosta. Fjórða mark Óla Vals í Bestu deildinni í sumar.

Stjörnumenn hoppuðu upp fyrir bæði KA og Fram með þessum góða sigri. Stjarnan er nú með eins stigs forskot á KA og tveggja stiga forskot á Fram í baráttunni um að vera sjötta og síðasta liðið inn í efri hluta úrslitakeppninnar.

Með þessum sigri skildu Stjörnumenn líka HK-inga eftir í fallsæti.

Hér fyrir neðan má sjá bæði mörkin úr leiknum.

Klippa: Mörkin úr leik Stjörnunnar og HK



Fleiri fréttir

Sjá meira


×