Viðskipti innlent

Skipaður deildar­for­seti við­skipta- og hag­fræði­deildar HR

Atli Ísleifsson skrifar
Stefan Wendt.
Stefan Wendt. HR

Dr. Stefan Wendt viðskiptafræðiprófessor hefur verið skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans í Reykjavík. 

Í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík segir að hann hafi lokið doktorsprófi frá Háskólanum í Bamberg, Þýskalandi, árið 2010 og meistaraprófi frá sama skóla í alþjóða og evrópskum viðskiptafræðum árið 2005.

„Stefan var prófessor og deildarforseti við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst frá 2021 til júlí 2024. Áður hafði hann starfað við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík frá árinu 2015. Stefan starfaði við rannsóknir og kennslu við Háskólann í Bamberg á árunum 2005 til 2015 og var einnig á þeim tíma gestaprófessor við háskóla í Frakklandi, Þýskalandi og Kanada.

Sérsvið Stefan eru m.a fjármál fyrirtækja, sjálfbær fjármál, stafræn fjármál og stjórnarhættir fyrirtækja. Hann hefur ritað fjölda greina á sínu sviði sem bæði hafa verið birtar í bókum og ritrýndum tímaritum. Auk þess hefur Stefan flutt erindi víða um heim, bæði á Íslandi, Norðurlöndunum, Evrópu og í Bandaríkjunum,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×