Innlent

Fjórföldun al­var­legra ofbeldisbrota og samstöðufundur

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Sunna Sæmundsdóttir les fréttir í kvöld.
Sunna Sæmundsdóttir les fréttir í kvöld. Vísir

Fjöldi alvarlegra ofbeldisbrota ungmenna hefur fjórfaldast á tíu árum og sífellt algengara er að hnífur komi við sögu. Dómsmálaráðherra er sleginn yfir lífshættulegri hnífaárás á menningarnótt. Nú þurfi allt samfélagið að leggjast á eitt til að sporna við slíkum brotum.

Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Vatnajökulsþjóðgarður hefði getað komið í veg fyrir slysið á Breiðamerkurjökli ef hlustað hefði verið á skýrslu frá árinu 2017, segir ráðherra ferðamála. Framkvæmdastjóri þjóðgarðsins segir stofnunina finna til ábyrgðar og að fyrirkomulag á svæðinu verði endurskoðað í kjölfar slyssins. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum.

Samstöðufundur fyrir hinn ellefu ára gamla Yasan sem er með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne og stendur frammi fyrir brottvísun fór fram á Austurvelli síðdegis í dag. Við verðum í beinni þaðan og heyrum í fundargestum.

Niðurstöðu um smíði nýrrar Ölfusárbrúar er vænst á næstu dögum. Kristján Már Unnarsson fer yfir málið en framkvæmdir gætu hafist í haust ef allt gengur samkvæmt áætlun.

Þá hittum við veðurklúbb hjúkrunarheimilisins á Dalvík sem gefur út spá fyrir veturinn og verðum í beinni frá setningu djasshátíðar í Reykjavík.

Í Sportpakkanum heyrum við í Alfreð Finnbogasyni sem hefur lagt landsliðsskóna á hilluna og í Íslandi í dag segir Kolbrún Pálsdóttir hjá Barnaheillum frá magnaðri reynslu en hún fór í vor til Austur-Kongó og heimsótti götubörn sem samtökin styrkja til betra lífs.

Þetta og margt fleira í opinni dagskrá á samtengdum rásum Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis klukkan 18:30




Fleiri fréttir

Sjá meira


×