Innlent

Konan sem lenti undir ísfarginu er ó­létt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá björgunaraðgerðum á Breiðamerkursandi sem stóðu sólarhring of lengi vegna þess að talning ferðamanna í ferðinni var ekki rétt.
Frá björgunaraðgerðum á Breiðamerkursandi sem stóðu sólarhring of lengi vegna þess að talning ferðamanna í ferðinni var ekki rétt. Vísir/Vilhelm

Kona sem slasaðist alvarlega þegar hún varð fyrir ísfargi við Breiðamerkurjökul á sunnudaginn er ólétt. Samkvæmt heimildum fréttastofu er konan á batavegi og barnið sakaði ekki.

Konan var ásamt bandarískum manni sínum í íshellaskoðunarferð með fyrirtækinu Ice Pic Journeys sem gerir út sumarferðir á svæðinu ásamt fleiri fyrirtækjum. Hann lést í slysinu. Alls voru 23 ferðamenn í hópnum sem skipt var í tvo hluta. Einn leiðsögumaður var með hvorn hóp en samkvæmt heimildum fréttastofu voru báðir óreyndir.

Leitað var að tveimur ferðamönnum til viðbótar undir ís fram á miðjan dag á mánudag þar til að í ljós kom að fyrirtækið hefði veitt lögreglu rangar upplýsingar um hversu margir hefðu verið í ferðinni. Þá var ljóst að enginn hefði verið ófundinn undir ísnum.

Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir að rannsókn á slysinu miði ágætlega en taki sinn tíma. Rætt hafi verið við alla ferðamennina sem voru í hópunum tveimur og leiðsögumennina.

Aðspurður um reynsluleysi leiðsögumannanna segir hann ekki tímabært að gefa neitt uppi um slíkt. Það sé hluti af rannsókninni. Lögregla haldi áfram að viða að sér gögnum og upplýsingum.

Vegurinn að Breiðamerkurjökli þar sem slysið varð er enn opinn. Sveinn Kristján segir lögreglu ekki hafa til skoðunar að loka honum.

„Þá værum við að fara að loka öllum jöklum landsins,“ segir Sveinn Kristján. Þónokkur fyrirtæki selja íshellaferðir í Kötlujökul á Suðurlandi sem dæmi. Aðspurður segir Sveinn Kristján lögreglu ekki hafa sérstaka skoðun á því nema að öryggis sé gætt, reynslumikið fólk meti svæðið og allir séu skráðir í ferðina.


Tengdar fréttir

Veita fjölskyldunni alla viðeigandi aðstoð

Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi veitir fjölskyldu karlmannsins sem lést í slysi á Breiðamerkurjökli á sunnudaginn alla viðeigandi ræðisaðstoð. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá sendiráðinu.

Greinir á hvort námið hafi verið lagt niður degi eftir bana­slys

Kennari í jökla- og fjallaleiðsögn segir að menntamálaráðuneytið hafi tilkynnt Framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu (FAS) degi eftir banaslys í íshelli að nám í greininni verði lagt niður um áramótin. Hún segir að menntaðir og reyndir jöklaleiðsögumenn hefðu aldrei farið inn í íshellinn á sunnudaginn. Ráðuneytið hafnar því að hafa lagt til að námið yrði lagt niður.

„Við þurfum bara að læra að segja nei“

Leiðsögumaður, ferðaþjónustufyrirtæki, ferðasölufyrirtæki og þjóðgarðurinn Vatnajökull brugðust í aðdraganda slyssins á Breiðamerkurjökli þar sem tveir bandarískir ferðamenn lentu undir ís í fyrradag. Þetta er mat Stephan Mantler jöklaleiðsögumanns sem hefur áratuga reynslu af jökla- og fjallamennsku á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×