Innlent

Styttur af Bakkabræðrum af­hjúpaðar á Dal­vík

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Þriðja styttan ný afhjúpuð í morgun, spenntir nemendur fylgjast með.
Þriðja styttan ný afhjúpuð í morgun, spenntir nemendur fylgjast með. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Styttur af Bakkabræðrunum þeim Gísla, Eiríki og Helga voru afhjúpaðar í morgun á göngustíg ofan Dalvíkur af nemendum Dalvíkurskóla. Ástæðan er sú að bræðurnir voru frá bænum Bakka í Svarfaðardal en skemmtilegu sögurnar af þeim bræðrum þekkja flestir.

„Síðastliðinn vetur hönnuðu nemendur skólans þessa ágætu bræður. Smíðakarlarnir eru í fullri stærð og á þeim má finna QR kóða, sem hægt er að skanna með myndavél úr síma til að hlusta á skemmtisögur af þeim bræðrum. 

Þau Sunneva Björk Aradóttir, Hörður Högni Skaftason og Bríet Þóra Karlsdóttir, sigurvegarar Dalvíkurskóla í stóru upplestrarkeppninni sáu um upplesturinn og Bil Guðröðardóttir, sem útskrifaðist úr Dalvíkurskóla 2022 teiknaði karlana með aðstoð Skapta myndmenntakennara. Margir nemendur komu síðan að verkefninu á þemadögum sem við vorum með um heimabyggðina vorið 2024,” segir Guðný Sigríður Ólafsdóttir, kennari við skólann og bætir við.

Nemendur ættaðir frá Bakka í Svarfaðardal afhjúpuðu alla þrjá bræðurna.Aðsend

„Nú hafa þeir bræður strokið úr Dalvíkurskóla og hafa komið sér fyrir á göngustígnum góða fyrir ofan skógarreitinn Bögg. Fallegir tréhringir prýða einnig nokkur tré í Bögg, en á þeim eru teiknaðar myndir úr sögunum eftir nemendur. Þetta var skemmtilegt samvinnuverkefni margra nemenda og óhætt að segja að verkefnið samþætti margar námsgreinar, svo sem íslensku, sköpun, samfélagsfræði, upplýsingatækni , náttúrufræði, útivist og hreyfingu.”

Í morgun voru þeir bræður afhjúpaðir við hátíðlega athöfn í Bögg. Nemendur í 4. bekk leiddu söng um Bakkabræður sem Lovísa María Sigurgeirsdóttir samdi textann við, Friðrik Arnarson skólastjóri hélt stutta tölu og síðan var QR kóðinn prófaður og allir hlustuðu á söguna.

Bræðurnir sóma sér vel fyrir ofan skógarreitinn Bögg.Hér er einn þeirra.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Bæjarbúar á Dalvík og íbúar í næsta nágrenni og gestir eru hvattir til að fá sér göngutúr um stígana góðu ofan við og inni í Bögg, heilsa upp á bræðurna og hlusta á skemmtisögur af þeim. Bakkabræður munu dvelja við stígana eitthvað fram á haust, en þá munu þeir flýja í hús og bíða af sér veturinn. Með hækkandi sól næsta vor munu þeir eflaust koma sér fyrir aftur á göngustígnum.

Friðrik Arnarson, skólastjóri heldur hér stutta tölu um verkefnið, sem tókst einstaklega vel.Aðsend




Fleiri fréttir

Sjá meira


×