Handbolti

FH heldur á­fram að vinna titla eftir há­spennu

Sindri Sverrisson skrifar
Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson mætti heim í Kaplakrika til að vinna titla og það gengur vel.
Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson mætti heim í Kaplakrika til að vinna titla og það gengur vel. vísir/Diego

Íslandsmeistarar FH hefja nýja handboltavertíð eins og þeir luku þeirri síðustu, með því að vinna titil.

FH-ingar unnu tveggja marka sigur gegn Val, 30-28, eftir háspennuleik í meistarakeppni HSÍ í Kaplakrika í kvöld.

Bikarmeistarar Vals fengu tækifæri til að jafna metin þegar um fimmtán sekúndur voru til leiksloka en skref voru dæmd á nýja Færeyinginn í liði þeirra, Bjarna í Selvindi.

Símon Michael Guðjónsson skoraði svo lokamark leiksins og innsiglaði sigur FH. 

Jón Bjarni Ólafsson var markahæstur FH með átta mörk úr níu skotum en Símon, Aron Pálmarsson og Jóhannes Berg Andrason skoruðu sex mörk hver. 

Hjá Val var hinn færeyski Bjarni markahæstur með sjö mörk og Ísak Gústafsson skoraði fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×