Innlent

Fjórðungur lands­manna vill Krist­rúnu í for­sætis­ráðu­neytið

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar nýtur mun meiri vinsælda en aðrir stjórnmálamenn þegar kemur að forsætisráðherrastólnum.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar nýtur mun meiri vinsælda en aðrir stjórnmálamenn þegar kemur að forsætisráðherrastólnum. Vísir/Vilhelm

Um það bil 24 prósent landsmanna vill sjá Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar, sem næsta forsætisráðherra Íslands. Næstur er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, með níu prósent.

Þetta eru niðurstöður könnunar sem Prósent gerði fyrir hlaðvarpið Bakherbergið.

Samkvæmt þeim vilja sex prósent sjá Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, sem forsætisráðherra og fimm prósent Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar.

Bjarni Benediktsson nýtur einnig fimm prósent stuðnings sem forsætisráðherrakandídat en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mælast með fjögur og þrjú prósent.

Þrjú prósent sögðust vilja Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur og Sigurð Inga Jóhannesson.

Enginn þingmaður Vinstri grænna náði prósenti í könnuninni.

Miðflokkurinn í sókn

Niðurstöður Prósents ríma við niðurstöður Maskínu um fylgi flokkanna, þar sem Samfylkinginn er lang stærst með 25,5 prósent fylgi og Miðflokkurinn næst stærstur með 15,3 prósent fylgi. 

Miðflokkurinn hefur þannig tekið fram úr Sjálfstæðisflokknum, sem mælist með 13,9 prósent, en vert er að geta þess að munurinn er ekki marktækur.

Haka við einn aðila eða nefna annan

Þátttakendur í könnunarhópi Prósents gátu hakað við einn aðila og voru á listanum þrír aðilar hjá hverjum flokki og einnig var hægt að haka við „annar einstaklingur, þá hver?“.

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Ásmundur Einar Daðason, Framsóknarflokkurinn
  • Bergþór Ólason, Miðflokkurinn
  • Bjarkey Olsen, Vinstrihreyfingin - grænt framboð
  • Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Dagur B. Eggertsson, Samfylkingin
  • Dóra Björt Guðjónsdóttir, Píratar
  • Guðmundur Guðbrandsson, Vinstrihreyfingin - grænt framboð
  • Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokkur fólksins
  • Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaflokkurinn
  • Halldóra Mogensen, Píratar
  • Inga Sæland, Flokkur fólksins
  • Jakob Frímann Magnússon, Flokkur fólksins
  • Katrín Baldursdóttir, Sósíalistaflokkurinn
  • Kristrún Frostadóttir, Samfylkingin
  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Framsóknarflokkurinn
  • Logi Einarsson, Samfylkingin
  • Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sósíalistaflokkurinn
  • Sigmar Guðmundsson, Viðreisn
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Miðflokkurinn
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokkurinn
  • Svandís Svavarsdóttir, Vinstrihreyfingin -grænt framboð
  • Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Viðreisn
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Viðreisn
  • Þorsteinn Sæmundsson, Miðflokkurinn
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Píratar

Annar einstaklingur, þá hver?

Um fimmtán þúsund einstaklingar átján ára og eldri af öllu landinu eru skráð í könnunarhóp Prósents. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum á netföng þátttakenda. Niðurstöður eru vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu.

Úrtakið í þessari könnun var 2100 manns og var svarhlutfall 51 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×