Innlent

Falsboðið hafi borist er­lendis frá

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
04E46D032A532B2A8528188E4F69297A73E8D1FB49AF65CDAB5EBD8A317B0D91_713x0
Landsbjörg

Falsboðið sem lögreglu barst, þegar tilkynnt var að tveir ferðamenn væru fastir í helli í Kerlingarfjöllum, kom erlendis frá miðað við IP-tölu tækisins sem skilaboðin voru send úr.

Þetta staðfestir Sveinn Rúnar Kristjánsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, í samtali við Vísi en hann sagðist ekki getað gefið upp frá hvaða landi skilaboðin komu en staðfesti þó að þau hafi verið send innan Evrópu. 

Þann 5. ágúst var gripið til umfangsmikilla aðgerða vegna stafrænna skilaboða sem voru send til netspjalls Neyðarlínunnar með staðsetningu nærri Kerlingarfjöllum. Eftir um sólarhring af björgunaraðgerðum sem  rúmlega 200 manns komu að kom í ljós að um falsboð væri að ræða og leit hætt. 

Enn vongóð 

Sveinn segir rannsóknina miða vel áfram og tekur fram að lögreglan sé enn vongóð um að finna þann sem ber ábyrgð á skilaboðunum. Lögreglan er í samstarfi við lögreglu í því landi sem skilaboðin bárust frá og gengur samstarfið vel.

„Við höfum rakið þessi skilaboð erlendis og erum að vinna í áttina að því. Við erum í sambandi við lögregluyfirvöld þar og þetta tekur sinn tíma. Það væri óskandi ef við gætum náð í skottið á einhverjum.“

Skilaboðin send úr tölvu

Spurður hvort að það sé þá staðfest að sá sem sendi skilaboðin hafi verið staddur í umræddu landi segir Sveinn það óvíst að svo stöddu og bendir á að hægt sé að stela IP-tölu. Það liggi þó fyrir að skilaboðin hafi verið send úr tölvu en ekki síma. 

Hann segir það enn vera á huldu hvað vakti fyrir þeim sem sendi skilaboðin.


Tengdar fréttir

Sterkar vísbendingar um falsboð

Sterkar vísbendingar eru um að tilkynning um að tveir ferðamenn hafi fests í helli sem barst neyðarlínu í gærkvöldi hafi verið falsboð. Tilkynningin varð til þess að viðbragðsaðilar fóru í umfangsmikla leit sem ekki hefur skilað árangri.

Enn óljóst með endurkomu Kubica

Eric Boullier framkvæmdarstjóri Renault Formúlu 1 liðsins segir að liðið sé enn að bíða og sjá hvort Robert Kubica keppi með liðinu i Formúlu 1 á næsta ári. Kubica slasaðist í rallkeppni s.l. vetur og gat ekki keppt með liðinu í ár og hefur verið í endurhæfingu eftir óhappið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×