Lífið

Sver af sér á­sakanir um fram­hjá­hald

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Molly-Mae og Tommy Fury voru eitt vinsælasta par Love Island.
Molly-Mae og Tommy Fury voru eitt vinsælasta par Love Island. MEGA/GC Images)

Breska raunveruleikaþáttastjarnan Tommy Fury segir ásakanir þess efnis sem birst hafa á samfélagsmiðlum um að hann hafi haldið framhjá fyrrverandi kærustu sinni Molly-Mae Hague hryllilegar. Hann segir síðustu vikur hafa tekið gríðarlega á sig.

Þetta kemur fram í færslu kappans á samfélagsmiðlinum Instagram. Parið kynntist í bresku raunveruleikaþáttunum Love Island árið 2019 en þau voru langvinsælasta parið sem kynnst hefur í þáttunum. Það var því mörgum aðdáendum áfall fyrir fáeinum vikum þegar Molly tilkynnti að þetta væri búið hjá parinu, sem á dótturina Bambi.

„Þessar síðustu vikur hafa verið gríðarlega erfiðar. Þessar ósönnu ásakanir á hendur mér hafa verið hryllilegar. Ég þakka öllum sem hafa staðið með mér.“

Fékk stuðningsyfirlýsingar úr öllum áttum

Molly-Mae rauf þögnina um sambandsslitin fyrr í þessari viku. Hún þakkaði aðdáendum sínum fyrir stuðninginn og sagðist eiga besta vinahóp allra á netinu. Áður hafði stjarnan tilkynnt um sambandsslitin á miðlinum.

Þar sagðist hún aldrei hafa trúað því að hún myndi skrifa yfirlýsingu líkt og þessa. Þau hefðu verið saman í fimm ár, hún væri miður sín yfir því hvernig samband þeirra hefði endað. Stuðningsyfirlýsingum rigndi yfir stjörnuna eftir á og fóru sögusagnir fljótt á kreik um að Tommy hefði haldið framhjá henni.

Parið komst alla leið í úrslit þáttanna árið 2019 og lifði meðal annars af hina alræmdu Casa Amor villu. Samband þeirra var lengi vel notað sem dæmisaga um það hve vel getur tekist fyrir fólk að finna ástina í raunveruleikaþáttunum vinsælu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×