Golf

Sló golfhögg þótt að björninn væri að horfa á

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birnir eru stór og kraftmikil dýr. Ekki allir kylfingar gætu haldið ró og einbeitingu með slíkt dýr við hlið sér.
Birnir eru stór og kraftmikil dýr. Ekki allir kylfingar gætu haldið ró og einbeitingu með slíkt dýr við hlið sér. Getty/ Joe Giddens

Kylfingurinn Camdon Baker kallar ekki allt ömmu sína og það sést vel á nýju myndbandi sem hefur farið um samfélagsmiðla síðustu daga.

Baker sést þá taka fram dræverinn og taka upphafshögg á holu. Ekkert óeðlilegt við það nema að rétt hjá honum situr björn og fylgist með.

Björninn virðist vanur þessum aðstæðum og er greinilega líka búinn að læra það að halda kyrru fyrir á meðan slegið er. Strax eftir höggið þá hreyfir hann sig en fram að því „passar“ hann sig að trufla ekki kylfinginn.

Baker var að spila á Rise Resort golfvellinum í Breska-Kólumbíu fylki í Kanada. Vallarstæðið er hátt uppi fyrir ofan Okanagan vatn og í beinni tengingu við náttúruna.

Það þýðir ekki aðeins stór tré, vatn og mikinn hæðarmun á holum. Það þýðir einnig að villt dýr á svæðinu eru oft ekki langt í burtu.

Hér fyrir neðan má sjá þetta upphafshögg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×