Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins fór fram á Hilton í dag. Þrátt fyrir að vel hafi verið mætt þá var fundurinn haldinn í skugga þeirrar staðreyndar að flokkurinn hefur aldrei mælst með minna fylgi en akkúrat nú.
Í könnun Maskínu í liðinni viku mældist flokkurinn með 13,9 prósenta fylgi, og hefur aldrei mælst lægri. Í Þjóðarpúlsi Gallúp sem birtist í gær mældist fylgið skör meira, eða 17,1 prósent. Í báðum könnunum mælist Sjálfstæðisflokkurinn á sömu slóðum og Miðflokkurinn.
Formaður flokksins telur fylgið óviðunandi.
„En mín skilaboð hér í dag eru að slíkar mælingar eru engin ávísun á niðurstöður í kosningum, það sýnir nú sagan síðast í forsetakosningunum í vor. Verkefni okkar er að taka höndum saman og sækja fram,“ sagði Bjarni Benediktsson formaður í samtali við fréttastofu í dag, en ræðuna sem hann flutti á flokksráðsfundinum í dag er að finna hér að neðan.
Ungir hnýta í forystuna
Í tilefni af fylgismælingunni sendi Samband ungra Sjálfstæðismanna skilaboð til forystunnar og annarra fundarmanna: „13,9 prósent, hvað er planið?“
Auglýsingin var birt sem heilsíða í Morgunblaðinu, á skiltum við fundarstað og einnig dreift til fundargesta.
Formaður sambandsins segir marga hafa tekið vel í uppátækið.
„Forystan veit að það þarf eitthvað að gera. Við erum að líka að senda skilaboð til þjóðarinnar um að það eru ekki allir sáttir með stöðuna eins og hún er. Við þurfum að fara að hugsa okkar gang og fara í naflaskoðun, hvaða skilaboð það eru sem við erum að senda út í þjóðfélagið,“ sagði Viktor Pétur Finnsson, formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna.
Bjarni sagði unga Sjálfstæðismenn fara óhefðbundnar leiðir og þeir hafi alltaf viljað veita forystunni aðhald.
„En þeir verða auðvitað líka að halda í það kjarnahlutverk sitt að teikna upp framtíðarsýn fyrir bæði ungt fólk og aðra í landinu. Framtíðar Ísland sem þau sjá fyrir sér, tala um það og færa inn í umræðuna. Ekki bara kasta höndum upp í loft og segja: Hvað eigum við að gera?“
Ákveður sig nær landsfundi
Í ræðu sinni á fundinum sagðist Bjarni ekki hafa gert upp hug sinn um hvort hann myndi gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku á landsfundi í febrúar.
„Og þegar nær dregur landsfundi þá þarf ég að taka ákvörðun um framtíðina með mínu fólki, og með hliðsjón af því sem ég tel vera best fyrir flokkinn okkar,“ sagði Bjarni í ræðunni.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, varaformaður flokksins, hefur verið afdráttarlaus um að ætla að gefa kost á sér til áframhaldandi starfa í forystu flokksins, ólíkt Bjarna.
Ef svo færi að hann gæfi ekki kost á sér, myndir þú þá sækjast eftir formennsku?
„Ég hef alveg verið mjög heiðarleg og opin með að ef það er eftirspurn eftir því, ef flokksmenn treysta mér í það verkefni, þá treysti ég mér í það verkefni,“ sagði Þórdís Kolbrún.
Ræðu Þórdísar á flokksráðsfundinum má finna í heild sinni í spilaranum hér að neðan.