Fótbolti

Kristall Máni opnaði markareikninginn sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristall Máni Ingason braut ísinn í dag og skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark fyrir Sönderjyske.
Kristall Máni Ingason braut ísinn í dag og skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark fyrir Sönderjyske. Getty/Seb Daly

Kristall Máni Ingason skoraði fyrir Sönderjyske í dag í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sönderjyske gerði þá 2-2 jafntefli á móti Viborg eftir að hafa missti niður tveggja marka forystu.

Kristall kom Sönderjyske í 2-0 á 36. mínútu en það dugði þó ekki til sigurs. Viborg menn jöfnuðu í seinni hálfleiknum.

Þetta var fyrsta mark Kristals á tímabilinu og líka það fyrsta sem hann á þátt í en þetta sjöundi leikurinn. Markið var því langþráð. Daníel Leó Grétarsson var líka í byrjunarliðinu hjá Sönderjyske.

Kristall var með átta mörk og sjö stoðsendingar þegar Sönderjyske vann sér sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Liðið hefur aðeins unnið einn af fyrstu sjö leikjum sínum í úrvalsdeildinni og situr í ellefta sæti af tólf liðum.

FC Kaupmannahöfn lék sinn fyrsta leik eftir að félagið seldi Orra Stein Óskarsson til Spánar og liðið vann þá 3-1 sigur á Bröndby. Orri var búinn að skora fimm mörk í fyrstu sex leikjunum.

Það voru miðverðirnir Gabriel Pereira og Kevin Diks (víti) sem sáu um mörkin í fyrri hálfleiknum en FCK lék manni færra í 47 mínútur eftir að Marcos Lopez fékk rautt spjald á 43. mínútu. Rúnar Alex Rúnarsson sat allan tímann á varamannbekknum.

Bröndby minnkaði muninn á 61. mínútu en tókst ekki að ná í stig þrátt fyrir að spila ellefu á móti tíu í meira en einn hálfleik. Mohamed Elyounoussi innsiglaði sigur FCK með þriðja markinu á 75. mínútu. FCK er í fjórða sæti deildarinnar.

Það varð 3-3 jafntefli í Íslendingaslag Brommapojkarna og Elfsborg í sænsku deildinni

Andri Fannar Baldursson og Eggert Aron Guðmundsson voru í byrjunarliði Elfsborg sem lenti þrisvar undir í leiknum en jafnaði í öll skiptin.

Hlynur Freyr Karlsson sat á bekknum hjá Brommapojkarna sem er í 10. sæti. Elfsborg er sjö stigum ofar í sjötta sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×