Fótbolti

Orri Steinn spilaði sinn fyrsta leik í marka­lausu jafn­tefli

Smári Jökull Jónsson skrifar
Orri Steinn í baráttunni í sínum fyrsta leik með Real Sociedad.
Orri Steinn í baráttunni í sínum fyrsta leik með Real Sociedad. Vísir/Getty

Orri Steinn Óskarsson lék sinn fyrsta leik fyrir Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar hann kom inn sem varamaður gegn Getafe í kvöld.

Gengið var frá félagaskiptum Orra Steins frá FCK til Real Sociedad á föstudaginn og var hann mættur til Spánar í gær á fyrstu æfingu sína með félaginu.

Í gær var tilkynnt að Orri Steinn yrði í leikmannahópi liðsins gegn Getafe í Madrid og hóf Orri Steinn leikinn á varamannabekk liðsins. Hann kom inn af bekknum á 66. mínútu leiksins en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn.

Leiknum lauk með markalausu jafntefli en lið Real Sociedad er í 13. sæti La Liga með fjögur stig eftir fjórar umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×