Golf

Gagn­rýndi móta­fyrir­komu­lagið en vann síðan 3,5 milljarða

Smári Jökull Jónsson skrifar
Scheffler fagnar með FedEx-bikarinn á lofti.
Scheffler fagnar með FedEx-bikarinn á lofti. Vísir/Getty

Scottie Scheffler fór með sigur af hólmi á lokamóti PGA-mótaraðarinnar en mótinu lauk nú í kvöld.

Á þessu lokamóti mótaraðarinnar, sem kallast FedEx-mótið, er spilað um gríðarlega háar peningaupphæðir. Áður fór þessi upphæð til sigurvegara mótaraðarinnar en í ár var fyrirkomulagið þannig að Scheffler, sem var langefstur fyrir mótið, fékk tveggja högga forskot á aðra keppendur.

Þetta var Scheffler ekki sáttur með og gagnrýndi fyrirkomulagið harðlega í vikunni og vildi meina að góður árangur yfir allt tímabilið ætti að telja meira.

Þetta virðist þó ekki hafa haft áhrif á Scheffler. Hann sannaði yfirburði sína á þessu ári og vann nokkuð öruggan sigur á lokamótinu í Atlanta. Hann lauk keppni á 30 höggum undir pari en Collin Morikawa varð í 2. sæti á 26 höggum undir pari.

Scheffler virtist ætla að gera mótið spennandi eftir að hafa klikkað illilega á 8. braut og þá skildu bara tvö högg hann og Morikawa að. Scheffler svaraði hins vegar eins og meistarar gera, náði þremur fuglum í röð og svo náði hann erni á fjórtándu braut.

Eftir það var aldrei spurning hver yrði sigurvegari og Scheffler var vitaskuld ánægður eftir mótið.

„Það var auðvitað ekki gott að klúðra þessu höggi en ég átti síðan gott upphafshögg á 9. braut og náði fugli. Síðan rúllaði þetta bara áfram,“ sagði Scheffler eftir leik.

Eins og áður segir eru gríðarlega háar peningaupphæðir í boði fyrir sigurvegara mótaraðarinnar. Scheffler fær hvorki meira né minna en tæplega 3,5 milljarða króna í vasann.

„Ég er stoltur af vinnunni hjá mér og mínu liði. Það er erfitt að lýsa því hvernig þetta ár hefur verið, það hefur klárlega verið tilfinningaríkt og viðburðaríkt utan vallar,“ en Schefler varð faðir fyrr á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×