Erlent

Hóta að breyta kjarn­orku­vopna­stefnu vegna stuðnings við Úkraínu

Kjartan Kjartansson skrifar
Vladímír Pútín Rússlandsforseti á fundi um öryggismál. Rjabkov aðstoðarutanríkisráðherra er fremst vinstra megin á myndinni.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti á fundi um öryggismál. Rjabkov aðstoðarutanríkisráðherra er fremst vinstra megin á myndinni. Vísir/EPA

Stjórnvöld í Kreml hóta því nú að breyta stefnu sinni um hvenær þau eru tilbúin að beita kjarnavopnum vegna stuðnings vestrænna ríkja við Úkraínu. Þau saka Vesturlönd um að „ganga of langt“ í stríði sem Rússland hóf.

Rússar eiga stærsta kjarnorkuvopnabúr í heimi og þeir hafa ítrekað ýjað að því að þeir gætu beitt þeim til þess að fæla vestræn lýðræðisríki frá því að aðstoða Úkraínumenn í að verjast innrás þeirra. Daginn sem innrásin hófst hótaði Vladímír Pútín forseti því að þeir sem reyndu að stöðva Rússa fengju að kenna á því á „hátt sem þeir hefðu aldrei upplifað áður“.

Nú hafa rússneskir fjölmiðlar eftir Sergei Rjakbov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, að stjórnvöld séu langt komin með breytingar á kjarnorkuvopnastefnu sinni og að þau hafi kláran ásetning um „leiðréttingar“.

Breytingarnar rakti Rjabkov til „stigmögnunar“ vestrænna andstæðinga Rússlands í tengslum við stríðið í Úkraínu. Dmitríj Peskov, talsmaður ríkisstjórnarinnar, sakaði vestræn ríki um að ganga of langt í viðtali sem birtist í dag. Hann fullyrti að Rússar gerðu hvað sem þurfa þyrfti til þess að verja hagsmuni sína, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Úkraínumenn hafa undanfarnar vikur notað vestræn vopn til þess að hernema landsvæði í Kúrsk-héraði í Rússlandi sem Rússar hafa átt erfitt með að svara.

Sú gagninnrás virtist gera lítið úr yfirlýsingum Pútíns sem virtist ætlað að láta vestræn ríki óttast að hann gæti beitt kjarnavopnum ef þau taka of virkan þátt í vörnum Úkraínu. Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, vill að vestrænir bandamenn leyfi Úkraínumönnum að nota vopn til þess að gera gagnárásir lengra inn í Rússland, þaðan sem árásir eru gerðar yfir landamærin.


Tengdar fréttir

Æfa notkun „taktískra“ kjarnorkuvopna

Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Rússlands tilkynntu í dag að æfingar með svokölluð „taktísk kjarnorkuvopn“ hefðu hafist í dag. Það er sama dag og leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu að senda vexti af frystum eigum Rússa til Kænugarðs eða nota til hergagnakaupa fyrir Úkraínumenn.

Lýgur því að Rússar hafi aldrei hótað notkun kjarnorkuvopna

María Zakharova, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, hélt því fram í morgun að Rússar hefðu aldrei hótað notkun kjarnorkuvopna í tengslum við innrásina í Úkraínu. Hún skammaðist út í ráðamenn í Bandaríkjunum fyrir að halda því fram og sakaði þá um ábyrgðarleysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×