Bíó og sjónvarp

Ljós­brot valin besta nor­ræna kvik­myndin

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Elín Hall, Katla Njáls, Gunnar Hrafn, Ágúst Wiigum og Mikael Kaaber aðalleikarar Ljósbrots.
Elín Hall, Katla Njáls, Gunnar Hrafn, Ágúst Wiigum og Mikael Kaaber aðalleikarar Ljósbrots. Arnar Freyr Eldey films

Kvikmyndin Ljósbrot hefur farið sigurför um heiminn og hlaut um helgina aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Osló sem besta norræna kvikmyndin.

Formaður dómnefndarinnar var Jorunn Myklebust og dásamaði hún myndina.

„Ljósbrot fjallar um sorgina á fíngerðan og flókinn hátt. Á stuttum tíma fangar myndin fjölmargar tilfinningar eins og ást, umhyggju, reiði og afbrýðisemi.

Í gegnum þetta litróf tilfinninga ná aðal kvenpersónurnar sérstaklega að tengjast og með þeim færist áhorfandinn í áttina að von sem sigrar óttann.

Ljósbrot er hrá, líkamleg og húmanísk saga sem getur skapað tilfinningalegan hljómgrunn hjá öllum,“ segir Jorunn.

Eru þetta fimmtu alþjóðlegu kvikmyndaverðlaun Ljósbrots sem hefur verið að fara sigurför um heiminn eftir að hafa hlotið standandi lófaklapp sem opnunarmynd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes. 

Ljósbrot hefur einnig verið valin í forval til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna og fram undan eru fjölda kvikmyndahátíða . Þá hefur Ljósbrot einnig selst vel og mun fara í almennar sýningar um allan heim á næstunni.

Myndin gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu og upphefst rússíbanaferð tilfinninga. Þar sem mörkin milli hláturs og grátur, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr. Með aðalhlutverk fara, Elín Hall, Katla Njálsdóttir, Mikael Kaaber, Baldur Einarsson, Gunnar Kristjánsson og Ágúst Wigum.

Rúnar Rúnarsson leikstjóri myndarinnar er í skýjunum með viðbrögðin.

„Þessi velgengni Ljósbrots er búin að vera lyginni líkust. En svona kraftaverk gerast ekki af sjálfum sér. Við erum svo heppin að hafa ótrúlega hæfileikaríkan hóp leikara, frábæra listamenn og fagfólk. Og jarðveg sem einkaaðilar og stjórnvöld hafa verið að rækta undanfarin ár. Við megum öll vera stolt,“ segir Rúnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×