Fótbolti

U21 árs lands­liðið í beinni á Stöð 2 Sport

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ungu strákarnir okkar verða í beinni á Stöð 2 Sport.
Ungu strákarnir okkar verða í beinni á Stöð 2 Sport. vísir/hulda margrét

Strákarnir okkar í U21 árs landsliðinu eiga mikilvæga leiki fram undan og þeir verða í beinni á Stöð 2 Sport.

6. september spila strákarnir við Danmörku og fjórum dögum síðar mætir liðið Wales. Báðir leikirnir eru á heimavelli.

Stöð 2 Sport verður með báða leiki í beinni og opinni útsendingu.

Ísland er í þriðja sæti riðilsins á eftir þessum tveimur þjóðum sem strákarnir spila við. Ísland hefur leikið einum leik minna en Danmörk en tveimur færri en Wales.

Hagstæð úrslit í þessum leikjum gætu því komið okkar drengjum í góða stöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×