Tónlist

Sam­talið ó­rjúfan­legur hluti af sköpuninni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Óskar Guðjónsson og Magnús Jóhann eru að gefa út plötu saman.
Óskar Guðjónsson og Magnús Jóhann eru að gefa út plötu saman. Eva Schram

„Við spilum fyrst og fremst af kærum sköpunarkrafti,“ segir píanóleikarinn Magnús Jóhann. Hann hefur undanfarin ár unnið að plötu ásamt saxófónleikaranum Óskari Guðjónssyni og hefur sköpunarferlið meðal annars einkennst af góðum samtölum þeirra á milli. Þeir frumsýna hér tónlistarmyndband við lag af plötunni.

„Platan okkar Fermented Friendship kemur út 20. september en við vorum að senda frá okkur lagið Greindargerjun, sem er eftir Óskar. Við gerðum þetta tónlistarmyndband í beinni með leikstjóranum Ella Sveins,“ segir Magnús Jóhann í samtali við blaðamann.

Hér má sjá tónlistarmyndbandið:

Klippa: Magnús Jóhann & Óskar Guðjónsson - Greindargerjun Live session No.3

Tóku plötuna upp í Hörpu

Magnús Jóhann og Óskar tóku plötuna upp í Hörpu í fyrra í Norðurljósasalnum.

„Okkur langaði mikið að prófa að taka upp þar, nota flyglana og einstaka hljóðið sem fylgir salnum, það er líka mjög lifandi og gott fyrir saxófóninn.“

Óskar og Magnús Jóhann hafa þekkst í þó nokkur ár og unnið saman endrum og eins með tónlistarfólki á borð við Bríeti og Moses Hightower.

„Þetta verkefni okkar byrjaði svo árið 2022. Ég nálgaðist Óskar með þá hugmynd að gera dúó polötu fyrir píanó og sax og semja aðeins laglínudrifnari lög.“

Magnús Jóhann og Óskar Guðjónsson nálgast listina á sambærilegan hátt.Eva Schram

Óskar sló til og í heilan vetur hittumst þeir vikulega eða oftar til þess að spjalla saman og æfa.

„Þetta endaði svo þannig að ég samdi helminginn af plötunni og Óskar hinn helminginn. Við æfðum útsetningarnar og tókum svo upp í Hörpu með Bergi Þórissyni. Þetta tekur auðvitað alltaf tíma og við erum báðir með ýmis verkefni alltaf í gangi,“ segir Magnús Jóhann og bætir við:

„Ég er mjög kátur yfir þessu verkefni. Við erum komnir með vínylinn og þetta er virkilega flott hönnun frá Halldóri Eldjárn og Steingrími Gauta. Eva Schram tók sömuleiðis geggjaðar myndir fyrir umslagið og Bergur Ebbi skrifaði texta inn í plötuna, svokallaða liner notes.“

Því er víst að úrvalslið íslensks listafólks kom að verkefninu.

Magnús Jóhann og Óskar Guðjónsson við upptöku í Hörpu.Eva Schram

Kær sköpunarkraftur og mikilvæg samtöl

Samvinnan gekk að sögn Magnúsar Jóhanns mjög vel.

„Ég held að við lærum klárlega af hvor öðrum eða ég læri í það minnsta helling af honum, enda er Óskar mikill reynslubolti og 20 árum eldri en ég.

Við eigum líka margt sameiginlegt, við deilum ákveðinni sýn á músík og erum með sameiginlegan grundvöll fyrir okkar tónlistarsköpun.

Okkar sýn á tónlist og af hverju maður gerir tónlist var órjúfanlegur partur af þessu sköpunarferli.

Þessir vikulegu hittingar þar sem við vorum að æfa og kjafta voru til dæmis stór hluti af því. Oft var kjaftað kannski í einn og hálfan tíma og svo snertum við rétt á laginu. 

Útgáfan væri allt öðruvísi ef við hefðum ekki kjaftað svona mikið. Og auðvitað spiluðum við heilan helling líka.

Óskar er náttúrulega svo magnaður listamaður sem hefur fengist við alls konar. Hann er einn fremsti saxófón leikari í Evrópu og jafnvel í heiminum með algjörlega einstakan hljóm. 

Ekki nóg með það þá hefur hann lika þessa sýn á sína listsköpun, þessa nálgun hans á músík sem er engri lík. Það er engin íþróttamennska í fyrirrúmi, við erum ekki að skapa eða spila nema af kærum sköpunarkrafti. “

Óskar Guðjónsson er framúrskarandi saxófón leikari.Eva Schram

Platan kemur sem áður segir út 20. september og verður til sölu í öllum helstu plötuverslunum landsins.

„Við Óskar verðum með tónleika í Hofi á Akureyri 19. september daginn fyrir útgáfu og svo í Hljómahöllinni í Keflavík sunnudaginn 22. september,“ segir Magnús Jóhann að lokum. 

Magnús Jóhann og Óskar Guðjónsson á spjalli.Eva Schram

Hér má horfa á tónlistarmyndbandið á streymisveitunni Youtube og hér má hlusta á lagið á Spotify. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×