Viðskipti innlent

Kynna niður­stöður Sjálfbærniássins

Árni Sæberg skrifar
Viðurkenningar eru veittar í Opna háskólanum.
Viðurkenningar eru veittar í Opna háskólanum. Anton Brink

Niðurstöður Sjálfbærniássins 2024 verða kynntar þann 4. september kl. 9.15 í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík og fyrirtækjum sem skara fram úr veitt viðurkenning. Sjálfbærniásinn er nýr mælikvarði til að meta viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja og stofnana í sjálfbærni. 

Í fréttatilkynningu um viðburðinn segir að mælingin sé svar við aukinni kröfu frá viðskiptavinum og öðrum hagaðilum á fyrirtæki að leggja áherslu á sjálfbærni. Að verkefninu standi Prósent, Langbrók og Stjórnvísi.

Beina útsendingu frá kynningunni má sjá í spilaranum hér að neðan:

Markmið Sjálfbærniássins:

  • Að veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum.
  • Að hvetja íslensk fyrirtæki til að leggja enn meiri áherslu á sjálfbærni.
  • Að hjálpa fyrirtækjum að skilja mikilvægi þess að upplýsa almenning um að stefnu sína og verkefni sem snúa að sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð.
  • Að auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með kauphegðun sinni.
  • Að vera íslenskum fyrirtækjum hvatning til að leggja enn frekari áherslu á þessi mál.

Á fimmta tug fyrirtækja mæld

Í tilkynningu segir að rannsóknin hafi verið framkvæmd af rannsóknarfyrirtækinu Prósenti. Framkvæmdatími hafi verið frá janúar til ágúst 2024 og um hafi verið að ræða netkannanir sem voru sendar á handahófskennt úrtak úr könnunarhópi Prósents, sem inniheldur 15.000 Íslendinga, 18 ára og eldri.

Könnunin samanstandi af sex spurningum sem kanni viðhorf neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Spurningarnar snúi meðal annars að því hvort fyrirtæki leggi sitt af mörkum til samfélagsins, hvort þau hugi að velferð viðskiptavina og hvort þau leitist við að lágmarka sóun.

Í ár hafi 47 fyrirtæki verið mæld, sem starfa á fjórtán mismunandi mörkuðum. Á meðal þeirra markaða sem voru mældir séu fjarskipti, bankar, tryggingar, orkufyrirtæki og matvöruverslanir.

Sérstakar viðurkenningar í boði

Þá segir að viðurkenningar verði veittar á hverjum markaði fyrir sig auk þess sem fyrirtæki sem mælast með afbragðsgóða einkunn fái sérstaka viðurkenningu. Fyrirtæki sem fá viðurkenningu muni fá tækifæri til að nota merki Sjálfbærniássins í markaðsstarfi sínu, sem undirstriki frammistöðu þeirra í sjálfbærni að mati almennings. Vinningshöfum verði þannig veittur heiður sem geti styrkt orðspor og ímynd fyrirtækisins.

„Við hjá Stjórnvísi höfum mikla trú á að Sjálfbærniásinn ýti undir jákvæða þróun í íslensku atvinnulífi og skapi sér sess sem mikilvæg viðurkenning til þeirra vinnustaða sem leggja áherslu á sjálfbærni og virkt framlag í baráttunni gegn loftslagsvánni. Við göngum því til þátttöku í þessu frumkvöðlaverkefni okkar góðu samstarfsaðila með mikilli tilhlökkun,“ er haft eftir Gunnhildi Arnardóttur, framkvæmdastjóra Stjórnvísi.

„Við höfum lagt mikla vinnu í að þróa Sjálfbærniásinn með því að styðjast við mælikvarða sem hafa verið notaðir á alþjóðlegum mörkuðum. Leit okkar að besta mælikvarðanum tók um ár og í ár voru skoðuð 47 fyrirtæki á 14 mörkuðum. Mælingin sýnir skýra mynd af viðhorfi fólks til þeirra fyrirtækja sem eru mæld og við vonum að niðurstöðurnar verði hvatning til fyrirtækja að vanda enn frekar til verka í þessum málum og miðla upplýsingum um samfélagslega ábyrgð sína,“ er haft eftir Trausta Heiðari Haraldssyni, framkvæmdastjóra Prósents.

Öll velkomin

í tilkynningu segir að kynningin fari fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík. Öll sem hafi áhuga á sjálfbærnimálum og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja séu hvött til að mæta og kynna sér þetta nýja mælitæki sem geti haft mikil áhrif á íslenskt atvinnulíf. Í haust muni Opni háskólinn setja upp Sjálfbærniskólann í samstarfi við Festu.

„Sjálfbærniásinn er mikilvægt skref í átt að aukinni sjálfbærni í íslensku samfélagi og hvetur fyrirtæki til að standa sig enn betur í þessum mikilvægu málum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×