Íslenski boltinn

Grillað fyrir appel­sínu­gula sem berjast fyrir lífi sínu

Sindri Sverrisson skrifar
Fylkiskonur eru með bakið uppi við vegg í fallbaráttu Bestu deildarinnar.
Fylkiskonur eru með bakið uppi við vegg í fallbaráttu Bestu deildarinnar. vísir/HAG

Fylkisfólk hefur blásið í herlúðra fyrir leikinn við Stjörnuna í Garðabæ í kvöld, í Bestu deild kvenna í fótbolta. Fylkir þarf á sigri að halda í erfiðri fallbaráttu.

Á Facebook-síðu Fylkis er birt „ákall til Árbæinga“ og þeir hvattir til að mæta á Fylkisvöll í dag, þaðan sem fríar rútuferðir verða í Garðabæinn.

Þeir sem mæta í appelsínugulum einkennislitum Fylkis fá fríar pylsur eða hamborgara af grillinu á Fylkisvelli kl. 16, og boðið verður upp á spurningakeppni fyrir yngri kynslóðina með veglegum vinningum, samkvæmt auglýsingu.

Stuðningsmenn eru minntir á það hve mikið dyggur stuðningur þeirra hjálpaði í úrslitaleik gegn Gróttu í Lengjudeildinni í fyrra og ljóst er að Fylkisliðið þarf ekki síður á stuðningi að halda í dag.

Sex stig upp í næsta örugga sæti

Fylkir situr nefnilega í fallsæti með aðeins 10 stig eftir 18 leiki, jafnmörg stig og botnlið Keflavíkur. Næsta lið fyrir ofan er Tindastóll með 16 stig, og Stjarnan er örugg um að halda sér áfram í deildinni með 21 stig. Tap í kvöld færi því langt með að fella Fylkiskonur.

Deildinni hefur nú verið skipt upp og spila þessi fjögur lið í neðri hlutanum innbyrðis. Tindastóll vann 2-1 gegn Keflavík í gær og er því sex stigum frá fallsæti fyrir leikinn í kvöld.

Á laugardaginn mætast Tindastóll og Fylkir á Sauðárkróki, en Keflavík og Stjarnan suður með sjó. Lokaumferðin er svo 14. september þegar Stjarnan tekur á móti Tindastóli en Fylkir á móti Keflavík.

Leikur Stjörnunnar og Fylkis hefst klukkan 18 í kvöld og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Fyrsta umferð úrslitakeppninnar er svo gerð upp í Bestu mörkunum strax í kjölfarði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×