Innlent

Einn hand­tekinn í tengslum við líkams­á­rás

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
79 mál voru skráð í LÖKE á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt.
79 mál voru skráð í LÖKE á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi eða nótt mann í tengslum við líkamsárás í póstnúmerinu 104. Þolandi árásarinnar er sagður hafa hlotið minniháttar meiðsli.

Annar var handtekinn í miðborginni grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna en við leit á honum fundust einnig ætluð fíkniefni.

Tveir voru vistaðir í fangageymslu í annarlegu ástandi en annar þeirra er grunaður um rúðubrot og önnur eignaspjöll í póstnúmerinu 105. Lögreglu barst einnig tilkynning um innbrot og þjófnað úr bifreið í Hafnarfirði.

Nokkrir voru stöðvaðir í umferðinni, ýmist fyrir að aka of hratt, án ökuréttinda eða undir áhrifum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×