Upp­gjör: Breiða­blik - Sporting | Evrópu­draumur Blika á enda

Kári Mímisson skrifar
Andrea Rut Bjarnadóttir með boltann í leiknum við Sporting í kvöld.
Andrea Rut Bjarnadóttir með boltann í leiknum við Sporting í kvöld. vísir/Diego

Breiðablik tók á móti portúgalska stórveldinu Sporting Lissabon í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar nú í dag. Leikið var við toppaðstæður á Kópavogsvelli þar sem gestirnir frá Portúgal reyndust sterkari og sigruðu sannfærandi 2-0.

Það voru ekki liðnar nema fjórar mínútur af leiknum þegar fyrsta markið leit dagsins ljós og það gerði Telma Encarnacao fyrir Sporting. Breiðablik tapaði þá boltanum á hættulegum stað og Claudia Neto brunaði að marki Blika, fann Encarnacao sem skoraði með góðu skoti framhjá nöfnu sinni Telmu Ívarsdóttur, markverði Breiðabliks.

Gestirnir beittu öllum brögðum til að innbyrða sigur í kvöld.vísir/Diego

Gestirnir voru áfram sterkari aðili leiksins og fengu nokkur færi til að tvöfalda forystu sína í fyrri hálfleiknum en inn vildi boltinn ekki. Á sama tíma átti Breiðablik í mestu vandræðum með að halda boltanum og skapa sér færi.

Undir lok fyrri hálfleiks dró þó til tíðinda þegar Samantha Smith slapp í gegn um vörn Sporting. Hannah Seabert óð út úr markinu og braut á Smith langt fyrir utan vítateig og héldu þá flestir að hún væri á leið í sturtu snemma en dómari leiksins lét sér duga að gefa henni gula spjaldið, eitthvað sem heimakonur voru alls ekki sáttar með. Staðan því 0-1 fyrir Sporting þegar liðin héldu til búningsklefa.

Áhorfendur létu í sér heyra í Kópavoginum í kvöld.vísir/Diego

Seinni hálfleikur byrjaði með látum en Vigdís Lilja Kristjánsdóttir var hársbreidd frá því að jafna leikinn strax á fyrstu mínútu hálfleiksins. Eftir mikið klafs í vítateig Sporting náði Vigdís að pota í knöttinn af stuttu færi en boltinn fór rétt framhjá.

Gestirnir frá Portúgal voru áfram með tögl og hagldir á leiknum og tókst að bæta við öðru marki á 74. mínútu leiksins og þar var aftur á ferðinni Telma Encarnacao eftir stórkostlega sendingu frá Ana Capeta. Sporting tókst að vinna boltann á sínum vallar helming og koma honum á Capeta sem gaf 30 metra sendingu á Encarnacao sem lék á Telmu Ívarsdóttur áður en hún skoraði í tómt markið. Glæsilega gert hjá gestunum.

Barbára Sól Gísladóttir á ferðinni í kvöld.vísir/Diego

Breiðablik reyndu allt hvað þær gætu til að koma reyna að minnka muninn undir lokin en án þess að takast að skapa sér nein alvöru tækifæri og lokatölur því 0-2 hér í Kópavoginum. Sporting Lisbon fara því áfram í aðra umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu á meðan Breiðablik er úr leik.

Atvikið

Atvik leiksins er klárlega þegar Hannah Seabert, markvörður Sporting er dæmd brotleg fyrir utan teig í dag. Samantha var komin ein í gegn og fyrst hún er dæmd brotleg þá myndi ég halda að þarna hafi átt að fara rautt spjald á loft en ekki gult.

Stjörnur og skúrkar

Lið Sporting sýndi mikil gæði í dag og margar frambærilega knattspyrnukonur í því. Telma Encaracao var fremst meðal jafningja hjá þeim í dag, skorar tvö flott mörk og hefði hæglega getað skorað fleiri. Því miður sýndi Breiðablik ekki sínar bestu hliðar í dag og mögulega var bara aðeins of mikill getumunur á liðunum.

Hlúð að Katrínu Ásbjörnsdóttur.vísir/Diego

Dómarinn

Ég ætla bara að leyfa dómaranum að njóta vafans en auðvitað er stórt atvik í þessum leik þegar hún dæmir brot á markvörð Sporting sem var aftasti maður. Það verður hver að dæma fyrir sjálfan sig en Deborah frá Ítalíu var allavega viss í sinni sök á því hvaða litur skyldi fara á loft.

Stemning og umgjörð

Evrópu stemningin á Íslandi er alltaf einstök. Umgjörðin verður aðeins stærri og skemmtilegri þegar við fáum að mæta erlendum liðum og ekki skemmir það þegar gestirnir eru eitt af stærstu félögum í Evrópu eins og í dag. 704 gerðu leið sína á Kópavogsvöll og þar af var hellingur af Portúgölum mættir að styðja sínar konur í góða veðrinu sem var í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira