Innlent

Allir austur um helgina

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sjórinn verður ekki endilega jafn hlýr og í júní árið 2019 þegar þessi mynd var tekin í Neskaupstað. En veðrið verður samt sem áður afar gott.
Sjórinn verður ekki endilega jafn hlýr og í júní árið 2019 þegar þessi mynd var tekin í Neskaupstað. En veðrið verður samt sem áður afar gott. Vísir/Vilhelm

Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar hvetur alla landsmenn að ferðast austur í veðurblíðuna um helgina. Á Vestfjörðum og Norðurlandi eru gular veðurviðvaranir, og losnaði bátur frá bryggju á Ísafirði vegna veðurofsans. 

Þessa dagana eru íbúar höfuðborgarsvæðisins aðlagast lífinu í grámyglunni eftir sumarið og eru íbúar á Vestfjörðum og Norðurlandi að glíma við gular veðurviðvaranir með allt að 22 metrum á sekúndu. Á Ísafirði slitnaði lítil skúta frá bryggju og rak upp í grjótgarðinn við Skutulsfjarðarbraut.

Á Austurlandi er sagan hins vegar allt önnur. Þar er hiti allt að tuttugu stig og von á sól og blíðu eftir hádegi, þrátt fyrir að sólin sé mætt á einhverja staði eins og Langanes.

Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, segir íbúa svæðisins afar ánægða með þennan sumarauka.

„Það var svolítill vindur í morgun, stífur sunnanvindur. Auðvitað bara hlýtt í honum. En samkvæmt veðurspánni í gær á að hægja hjá okkur um helgina. Þó að við höfum fengið góða daga í sumar er þetta afskaplega kærkomið eftir rigningar, sviptingar og fleira. Fá svona aðeins plús í þetta,“ segir Jón Björn.

Jón Björn Hákonarson er forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.

Hann vonast til þess að veðrið boði gott haust og mildan vetur.

„Við krossum fingur með það, það gæti verið afskaplega notalegt fyrir okkur öll að þetta yrði bara mildur vetur og fallegt haust um land allt,“ segir Jón Björn. 

Hann hvetur þá sem vilja ekki kveðja sumarið alveg strax að drífa sig austur um helgina.

„Nú rífa menn út grillið aftur og taka sumarfötin úr geymslunni. Jafnvel geta farið af stað með ferðavagna um helgina hér á Austurlandi. Því miðað við spána er það ekki síðra núna heldur en lungann af sumrinu hjá okkur. Sem hefur verið eins og um allt land ansi köflótt hjá okkur,“ segir Jón Björn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×