Innlent

Vís­bendingar um að land rísi enn á ný

Árni Sæberg skrifar
Ferðamenn hafa margir lagt leið sína að eldgosinu, sem nú fer dvínandi.
Ferðamenn hafa margir lagt leið sína að eldgosinu, sem nú fer dvínandi. Vísir/Vilhelm

GPS mælingar sýna vísbendingar um að landris sé hafið á ný í Svartsengi. Á sama tíma hefur dregið úr flæði frá eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Það bendir til þess að innflæði í kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi sé meira en flæði úr eldgosinu á yfirborðinu.

Þetta segir í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að virknin í eldgosinu hafi haldið áfram að minnka síðustu daga. Tvö gosop virðist þó enn vera virk. Hraunbreiðan norðan við gosopin haldi áfram að stækka á hægum hraða til norðurs og þykkna einnig á sama tíma. 

Að svo stöddu ógni hraunflæði ekki innviðum í nágrenni gosstöðvanna. Mælingar á gosóróa og gasútstreymi frá eldgosinu bendi einnig til þess að dregið hafi nokkuð úr gosinu síðustu daga.

Þróun landriss sé svipuð og eftir að síðasta gos hófst þann 29. maí. Þá hafi landris í Svartsengi byrjað að verða greinanlegt um tveimur vikum eftir að gosið hófst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×