Viðskipti innlent

Far­þegum fjölgaði um tíu prósent í ágúst

Atli Ísleifsson skrifar
Það sem af er ári hefur Icelandair flutt 3,2 milljónir farþega, eða átta prósent fleiri en í fyrra.
Það sem af er ári hefur Icelandair flutt 3,2 milljónir farþega, eða átta prósent fleiri en í fyrra. Vísir/Vilhelm

Icelandair flutti 601 þúsund farþega í ágúst, eða tíu prósent fleiri en í ágúst 2023. Þar af voru 33 prósent á leið til Íslands, þrettán prósent frá Íslandi, 50 prósent ferðuðust um Ísland og fjögur prósent innan Íslands. Forstjóri félagsins segir félagið finna fyrir minni eftirspurn á markaðnum til Íslands. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair til Kauphallar sem birt var í morgun.

Sætanýting var 86,9 prósent og jókst hún um þrjú prósentustig á milli ára. Stundvísi var 82,8 prósent samanborið við 78,9 prósent í ágúst í fyrra. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt 3,2 milljónir farþega, átta prósent fleiri en í fyrra.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.Vísir/Sigurjón

Finna fyrir milli eftirspurn

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að nýliðinn ágústmánuður sé einn umsvifamesti mánuður Icelandair frá upphafi hvað farþegafjölda varðar. „Við höldum áfram að finna fyrir minni eftirspurn á markaðnum til Íslands samanborið við síðasta ár en eins og sjá má á aukinni sætanýtingu höfum við bætt upp fyrir hana með því að leggja aukna áherslu á tengifarþega. Þess má geta að hluti þessara farþega eru ferðamenn til Íslands þar sem 18 þúsund tengifarþegar nýttu sér Stopover vöruna okkar í ágúst, fimm þúsund fleiri en í fyrra. Þessir farþegar höfðu því viðdvöl á Íslandi í einn til sjö daga á leið sinni yfir Atlantshafið og sköpuðu þannig mikilvæg viðskiptatækifæri fyrir íslenska ferðaþjónustu.

Það er ánægjulegt að sjá áframhaldandi góða stundvísi og þann frábæra árangur sem við höfum náð með sameiginlegu átaki alls starfsfólks. Við leggjum áherslu á að halda áfram að efla þjónustuna við viðskiptavini okkar og við hlökkum til að bæta Lissabon við okkar öfluga leiðakerfi í október. Þessi nýi áfangastaður fellur vel að áformum okkar um samstarf við portúgalska flugfélagið TAP, sem mun opna spennandi tengingar í gegnum Lissabon,“ segir Bogi Nils.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×