Atvinnulíf

Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands, segir bæn og íhugun og stöðug tengsl við Guð og sitt innra líf gera lífið allt svo miklu léttara. Guðrún og kötturinn Snæfríður gæða sér oft saman á grískri jógúrt á morgnana. 
Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands, segir bæn og íhugun og stöðug tengsl við Guð og sitt innra líf gera lífið allt svo miklu léttara. Guðrún og kötturinn Snæfríður gæða sér oft saman á grískri jógúrt á morgnana.  Vísir/RAX

Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, viðurkennir að langa ekkert endilega fram úr strax og hún vaknar á morgnana. Öll Abbalögin og Meat Loaf koma henni alltaf í dansgírinn og vinælt á hlaupalagalistanum eru Bubbi Morthens og Grýlurnar.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég er ekki lengur með börn sem vekja mig eldsnemma, nema þegar ömmustelpurnar gista en ég vakna yfirleitt með yngsta fjölskyldumeðliminum sem á að mæta hæfilega snemma í skólann.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Mér finnst ekki erfitt að vakna á morgnanna en langar þó alls ekki að fara framúr strax. Ég geymi það því í lengstu lög að fara á fætur og þá gef ég mér ekki tíma fyrir neitt nema það allra nauðsynlegasta.

Ég er ekki mikil morgunverðarmanneskja en fæ ég mér alltaf eitthvað létt og fljótlegt. 

Grísk jógúrt er til dæmis upplagður morgunverður því hún er í uppáhaldi hjá kettinum okkar henni Snæfríði. 

Hún mætir inn í eldhús um leið og ég opna dolluna, horfir spennt á mig borða og fær svo að sleikja innan úr henni.

Fyrsti kaffibollinn bíður þar til ég er komin í vinnuna.“

Hvaða lag frá unglingsárunum kemur þér alltaf í dansgírinn?

,,Allt með Abba og svo Paradise by the dashboard light með Meat Loaf. Það minnir mig á böllin á Borginni forðum. Svo var ég mikill aðdáandi bæði Bubba og Grýlanna og Sísí er ofarlega á hlaupalagalistanum mínum.“

Manneskjur eru ávalt í forgangi segir Guðrún, sem þýðir að skipulag presta, djákna og jafnvel biskups á það til að riðlast. Að upplagi er Guðrún mjög skipulögð, klárar predikanir sínar með góðum fyrirvara og finnst gott að skrifa verkefni á lista: á miða á skrifborðinu eða í símann. Vísir/RAX

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég er í óða önn að koma mér inn í verkefni biskups Íslands, þar er í ákaflega mörg horn að líta og margt sem ég þarf að setja mig inn í. Svo eru ákveðin verkefni sem mig langar að setja af stað og ég er byrjuð að vinna í nokkrum þeirra. 

Seinni partinn í september fer ég Uppsala og tek þátt í vígslu tveggja biskupa í Sænsku kirkjunni en venja er að biskupar á norðurlöndunum séu viðstaddir biskupsvígslur í nágrannalöndunum. 

Það er svo mikilvægt fyrir kirkjuna að muna og finna að við erum hluti af stærra samhengi, stærri heimi og rækta sambönd við systurkirkjurnar. 

Í september er hálf öld síðan fyrsta konan var vígð til prests og ég hlakka til að taka þátt í dagskrá af því tilefni en síðan sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir var vígð fyrst kvenna hafa um 120 konur verið vígðar til prestþjónustu.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég er frekar skipulögð og finnst mikilvægt að hafa góða yfirsýn yfir öll verkefnin og forgangsraða þeim. Þegar mikið er að gera þá verð ég enn skipulagðari en vanalega og því er ég til dæmis yfirleitt tilbúin með prédikanir og ræður með nokkuð góðum fyrirvara. 

Ég er líka mikið fyrir að skrifa lista. Það er svo ótrúlega gaman að geta strikað út af listanum verkefni sem ég hef lokið. Ég er bæði með lista á miðum á skrifborðinu og í símanum. Þegar verkefnin eru svona fjölbreytt þá finnst mér gott að skrifa niður og forgangsraða þannig. 

Svo gerist það oft að eitthvað óvænt og jafnvel sviplegt á sér stað sem kallar á þjónustu presta, djákna og jafnvel biskups og þá riðlast allt skipulag um tíma. 

Manneskjur eru ávalt í forgangi. 

Svo hef ég líka annað sem hjálpar mér í minni þjónustu og það er bæn og íhugun, að vera í stöðugum tengslum við Guð og mitt innra líf. Það gerir allt svolítið léttara.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? 

„Ég tel mér trú um að ég fari snemma að sofa. Ég trúi því einhvers staðar að ég fari að sofa um klukkan tíu en ég held þó að raunveruleikinn sé líklega nær miðnætti. Ég er samt frekar kvöldsvæf og ekki mikið fyrir að vaka lengi fram eftir.“


Tengdar fréttir

Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana

Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill og texta- og hugmyndasmiður hjá auglýsingastofunni TVIST, segir tvær mennskar vekjaraklukkur sjá til þess að hann fari snemma fram úr á morgnana; Önnur er fjögurra ára og hin eins og hálfs árs.

„Ótrúlega vel gift honum Obba sem er A-manneskja“

Brynhildur Lilja Björnsdóttir forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar, segist svo vel gift A manneskju að hún fær rjúkandi heitt rjómakaffi í rúmið frá eiginmanninum á hverjum morgni. Og D-vítamín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×