Íslenski boltinn

Úr krílaleikfimi á KR völlinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Viktor mættur á KR-völlinn.
Viktor mættur á KR-völlinn.

Í nýjasta þætti Leikdagsins er fylgst með markahæsta leikmanni Bestu deildar karla, Viktori Jónssyni.

Leikdagurinn hjá honum byrjar á Skaganum þar sem hann tók daginn snemma og fór með barnið sitt í krílaleikfimi.

Í þættinum er farið yfir tónlist sem hann hefur verið að gera og að sjálfsögðu farið í mat.

Þátturinn endar á KR-vellinum þar sem Viktor var að fara að spila með ÍA gegn KR. Þáttinn má sjá hér að neðan.

Klippa: Leikdagurinn: Viktor Jónsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×